Saturday, September 29, 2012

Vika 27


 
26 vikur í dag og vaknaði með þessa svaka bumbu!

Sem þýðir að vika 27 hefst á morgun og þar með þriðji hluti meðgöngunar! jæks

VIKA 27
Móðir: 
  • Nú þyngist þú reglulega alveg fram að viku 36. Ómæ er búin að þyngjast um 5-6 kg nú þegar!
  • Í lok þessarar viku gætiru upplifað öndunarerfiðleika þar sem legið liggur nú þétt að rifbeinunum og lungun hafa ekki nógu mikið pláss
  • Legið þenst út
  • Hreyfigeta minnkar - mörgæsalabb :)
  • Mundu að drekka vel af vatni og hafa fætur uppá stól þegar þú situr getur verið gott

Barn: 

  • Þyngd barnsins er nú 1 kg og hæð þess er 34cm. Hvar kemst það fyrir eiginlega??
  • Augnlok barnsins geta nú opnast og lokast
  • Hikstar. Ójá hún er sko farin að hiksta heldur mikið og er langt síðan
  • Gerir öndunaræfingar
  • Safnar holdi
Þannig er nú það, trúi varla að ég sé komin svona langt! Samt er heill hellingur eftir.
Annars bara líður mér rosa vel og allt gengur sinn vanagang nema að fötin eru farin að verða aaaaðeins þrengri.

Í gær fór ég sykurþolspróf, er að taka þátt í rannsókn um sykursýki á meðgöngu og vantaði þeim "fit" óléttar stelpur til að vega uppá móti og græði ég 30 mín sónar á þessu þegar ég er komin 36 vikur. Svo það var helsta ástæðan að ég nennti þessu :)
Fór semsagt niður á spítala í gær til að láta dæla úr mér blóði, mætti kl 8 og ég var þarna ásamt þessari svaka frekju, tælenskri stelpu hún var nú samt ekki í þessari rannsókn. Hún talaði hvorki íslensku né ensku og skildi ekkert, hún skildi varla hvað hún væri að gera þarna.
Þetta tók svona ca 2 klst og 30 mín og vorum við í biluðum lazyboy stólum inní pínkuponsu herbergi. Ég var undirbúin og tók bók með mér en tælendingurinn hélt að þetta myndi taka 2 mín og var ekkert undirbúin og var allan tímann að reyna tala eitthvað við mig og ég skildi EKKERT!!! og svo var hún alltaf á stólnum mínum og jesús var að farast úr pirring á henni.

Tælendingur: Edu badda húsa núna?
Ég: er að lesa og lít upp til hennar og bara ha?
Tæl: Edu húsa bada kaski ekki?
Ég: hmm ég skil ekki?
Tæl: hehehe ekki húsa!
Ég: Veitiggi! og held áfram að lesa.

1 mínúta líður

Tælendingur: lítid badda þadda og snertir á mér magann!
Ég: ég að lesa og lít upp uuu já þarna er lítið barn
Tæl: nei 7 lita núna nomber
Ég: HA?
Tæl: ég 1 ár og 5 ár í ísland og tala ítlantka
Ég: já vá dugleg! ?? (uuu what the hugsa ég og held áfram að lesa)
Tæl: tala bada nuna 8 og svo hættir hún því hún sér að ég hef ekki áhuga á að tala við hana,

3 sek seinna byrjar hún aftur með nýjar setningar!! og þessu hætti hún ekki!! hún tók samt smá pásur inná milli meðan hún var að reyna leggja sig GAHHHHH!!

Hér á myndunum er þetta fína herbergi sem við vorum í og leiðindar gellan þarna á stólnum mínum og var alltaf að setja tærnar á sér í blöðin þarna á borðinu..ojts


Það var tekið úr okkur blóð 3 sinnum á klukkutíma fresti og átti ég að fasta frá miðnætti daginn áður, svo var þetta loks búið, fór heim og var ekkert smá þreytt, settist uppí sófa áður en ég ætlaði að fá mér að borða og steinsofnaði en kannski bara svona í hálftíma og ég vaknaði aftur i þessu svakalega svitabaði með svaka skjálfta...ÚPS enda hljóp ég til að borða allt sem ég fann! Litla kannski ekki alveg sátt með mig þarna!

Úff búin að pústa núna :) Bless

Wednesday, September 26, 2012

101

Er komin 25 vikur og 4 daga í dag, sem þýðir 101 DAGAR í DUE DAY!! Allt gengur rosa vel, fór í mæðraskoðun í gær og allt leit rosa vel út. Orðið eðlilegt var punktað niður allstaðar, eina var að ég er með kannski dáldið litla kúlu, surprise surprise. Hún mældist 21cm en ætti að vera 25cm, þ.e.a.s legbotninn :) svona fyrir ykkur sem vitið hvað það er :) Litla gerði ekki annað en að sparka í tækið þegar ljósan ætlaði að reyna finna hjartsláttinn, var heillengi að reyna finna hann fyrir öllum spörkunum en svo fann hún loks þennan flotta hjartslátt :) 
Annars er svo lítið að frétta að ég tók myndir af leiðinni minni í mat og af hádegismatnum sem var á boðstólnum í dag í vinnunni. Kveðja ég og lilla sem getur ekki hætt að sparka í mig! :)


Thursday, September 20, 2012

Ástfangin....

....af buxum!! :) Fór í dag í "Tvö Líf" að kíkja á preggóbuxur. Fór semsagt á bumbuhitting í gær, mættum þar 10 saman og það var mjög gaman hjá okkur, við vorum svo lengi að við fórum út nánast með starfsmönnunum þegar þær voru búnar að loka, því við sátum svo lengi. En allavega þar voru 2 stelpur að tala um þessar æææðislegu buxur og ég ákvað að fara og kíkja. Og jább þær höfðu rétt fyrir sér, fann einar sem ég ætla aldrei að fara úr :) þvílíkur munur að komast í óléttubuxur! Vildi að ég hefði verið löngu búin að gera þetta :) þó að það sé líka alltaf þægilegt að vera bara í leggings!

En áður en ég fór þangað þurfti ég að kíkja í rúmfatalagerinn og ég labbaði þangað inn heldur betur töff á því!! Þegar ég var búin að ganga allt bílastæðið og komin inní búðina þá var ég að pæla hvað þetta væri eiginlega að þvælast fyrir mér í löppunum á mér. Þá var þar bara peysa sem hékk útúr úlpunni minni niður á hné, eða bara önnur ermin!! Great! Fór nebblilega úr úlpunni og peysunni á sama tíma í gær svo þær voru svona fastar saman. Svo í dag fór ég í aðra peysu, smellti mér í úlpuna og dró hina peysuna á eftir mér..CLASSY!!

Skráði mig líka á tvö námskeið í dag! Ákvað að sparka í rassinn á mér áður en það verður fullt á þau, þetta eru æsispennandi námskeið ; Fræðsla um Brjóstagjöf og svo undirbúningur fæðingar þar sem ég fékk seinasta plássið!

Hér er svo ein bumbumynd 4 mánuðir - 5 mánuðir - 6 mánuðir
 úff trúi varla að ég sé að setja þetta hér inn!



Wednesday, September 19, 2012

bloggí blogg

Jæja ætli maður þurfi ekki að blogga ef maður ætlar að halda uppi bloggsíðu ? :)
Var í vaktarfríi í dag og dagurinn gat ekki verið fallegri, fullkomið haustveður!!
Ég ákvað líka að vera dáldið myndarleg og baka kökur! Jebb mjög svo góðar ef ég segji sjálf frá, og fór með nokkrar til Ósk og Albert sem voru í nýju fínu íbúðinni sem þau voru að fjárfesta í. Ekki veitti af að koma með smá orku til verkamannanna sem sátu sveittir að gera upp íbúðina. 
Nomm nomm :)

Litla daman hefur það bara gott, lætur vita af sér regulega og allir verkir allt það er bara hætt. Ég hringdi í ljósuna fyrir svona viku því þá var ég bara að drepast í bakinu og í mjöðmunum og niður í lappir. Hún sagði mér að fara til læknis og fékk ég tíma í dag sem ég reyndar afpantaði því næstum leið og ég lagði á ljósuna eftir að hafa talað við hana, þá bara hættu allir verkir!! weird right?? Hef EKKERT fundið til og ég sem var að deyja úr verkjum og gat varla hreyft mig á kvöldin reglulega í allavega 2 mánuði áður en ég LOKSINS hringdi.

Svo suma daga, gleymi ég næstum að ég sé ólétt! En bumban fer þó stækkandi. Daði er líka rosalega duglegur að spjalla við litlu stelpuna sína. 
Hér er hann að reyna hlusta á hjartsláttinn hennar, því í einu iphone pregnant appinu var sagt að hægt væri að heyra hjartsláttinn á 24 viku ef allt væri hljótt og maður myndi einbeita sér að hlusta. Þarna lá hann heillengi :)

 Við kíktum aðra helgina í röð í sveitina um helgina í réttir, og þessi mynd lýsir helginni dáldið vel
BEFORE AND AFTER :)
Þeir félagar hafa örugglega spjallað saman um litaval á fötunum sínum áður en við lögðum af stað.
Hér eru nokkrar myndir frá helginni, tók þó næstum engar. En nú er ég hætt að vera svona léleg að blogga!

    

     

BEST Í SVEITINNI!!!

Tuesday, September 11, 2012

Myndablogg


Fyrsti snjórinn mætti uppí Esju í gær ásamt hávaða roki og bandbrjáluðum bil, Halló vetur!!

Við bumba sitjum hér í kósýheitunum að hlusta á nýja "the xx" diskinn, og hljómar hann mjög vel í eyrum okkar beggja, svona miðað við spörkin allavega. Nema hún sé að mótmæla :) Pabbinn fór að keppa í íshokkí svo við ætlum að dúlla okkur við að skoða og setja inn myndir frá kósý helginni sem við áttum uppí sveit. Fórum í laxveiði, réttir og týndum allavega 15 lítra af berjum. Komum sko heim með björg í bú:)
Daði, bróðir Daða og pabbi þeirra og lúlli vinur þeirra áttu helgarhollið í ánni alla helgina. Ég ákvað að sýna þeim hvernig ætti að fara að því að veiða lax og var ekki fyrr búin að setja öngulinn ofan í ánna þegar laxinn beit á!...hahaha ahh það var algjör snilld að ná fyrsta laxinum ;)
    
Amma þarna á kafi inní runna að ná bestu berjunum :)

Marinó var að moka skít og ekki veitti af að smúla hann frá toppi til táar eftir það


Kveðja, VIÐ

Monday, September 10, 2012

23 vikur

23 vikur
  • Bumban stækkar og stækkar, að mínu mati allavega
  • Litli boxarinn er að fullu alla daga að boxa og sparka í mömmu sína
  • Pissublaðran er orðin eins og tepoki!
  • Bakið er að fara með mig suma daga, sem leiðir niður í mjaðmir, niður í læri og stundum niður alla löppina sérstaklega þegar ég fer að sofa. Aldrei hefði mig grunað að það gæti verið svona erfitt að snúa sér á hliðina. Hvernig verður þetta með áframhaldandi stækkandi bumbu?!
  • Grindargliðnun?? það er spurning!
  • EKKI KROSSLEGGJA lappir, það má bara ekki sérstaklega ef grindargliðnun á í hlut og VÁ hvað það er erfitt, prófið að fara í gegnum einn dag án þess að krossleggja lappir! Það er bara ekki hægt!!
  • 4 - 5 kg hafa bæst á vigtina! jæks
  • Bakflæði fer minnkandi með degi hverjum
  • Vaxtaverkir alla daga.
  • hmmm svo er bara ekkert meira að held ég :) lífið er yndislegt !!


 Komin heim af 10 tíma vakt í dag, mygl...23v + 2 dagar :)


Tuesday, September 4, 2012

Að borða 18 rétti er erfitt!

Enn einn fallegur haustdagur var í dag. Og í tilefni þess ;) var veitingastaðurinn nýji niðri vinnu "formlega"opnaður þ.e.a.s Elding Bistro. Og til þess að hafa dásemdarmat mat á staðnum var aðal liðið kallað í generalprufu í fyrradag til að smakka allann, JÁ ALLANN!! matseðillinn og dæma hann!!
Þetta átti allt að gerast á einu kvöldi, en þegar við vorum komin í rétt 12 þá gátum við bara ekki meira, ég var hætt að finna bragð, hætt að geta andað, og greyið barnið mitt var farið að sparka í mig á fullu örugglega kvartandi um plássleysi. Og inní þessum 12 réttum voru franskar, nachos og fleira on the side ekki talið með. Svo ákveðið var að hætta það kvöld og hafa framhald kvöldið eftir. Vínsmökkun var í gangi líka, og vínþefun hjá mér svo þið getið rétt ýmindað ykkur og engu var sparað!:) Þessa nótt gat ég ekki sofnað fyrr en hálf 4. Vaknaði líka með þetta þvílíka bakflæði. Það er búið að vera hrjá mig seinustu daga og ekki batnaði það nú að fara sofa svona saddur!
Kvöldið eftir kláruðum við að smakka afganginn, 3-4 aðalrétti og 3 guðdómlega eftirrétti!!mmmmm og ekki kvartaði ég yfir því.

Í dag var fyrsti dagurinn minn sem ég lít actually út fyrir að vera ólétt. Það sást almennileg bumba, mjög ánægð með það, hún bara poppaði út í nótt, spurning þó hvort að allur þessi matur seinustu daga sé eitthvað að spila inní :) Eða hún er allavega stór á mínum mælikvarða þó að allir séu ósammála því. Reyndar sagði Daði VÓ við bumbunni þegar hann sá mig í dag eftir vinnu. Og honum fannst hún hafa stækkað hellings síðan í gær.
Líður bara nokkuð vel, nema að bakflæðið er orðið dáldið þreytandi og bakið á mér er stundum að stríða mér og get ég stundum ekki stigið fram úr rúminu á morgnana, og á kvöldin er ég eins og ellismellur að standa uppúr stól eða sófa útaf bakinu.
Og svo það nýjasta sem byrjaði í gær var að ég fékk reglulega stingi undir handakrikana svona dáldið rafmagnaða. Veit ekki hvort að það sé enn eitt óléttumerkið!

svona leit morgunmaturinn minn útí gær!! með vibba myglublett. Ég hringdi í MS eins og bitur kona í breiðholtinu og kvartaði...
Og þetta fékk ég í skaðabætur, ekki slæmt :)
Hvað ef ég hefði hrist dolluna aðeins og bara borðað mygluna með bestu lyst!!...OJ...ÆL

Sunday, September 2, 2012

02.sep.2012

Við Daði ákváðum að nýta frídaginn okkar í pússa og gera að nýju hlutunum okkar, þar sem það var alltof mikil sól úti og alltof fallegt haustveður þá ákváðum við bara að hanga inní bílskúr :)

Ég pússaði og spreyjaði ekkert svo vel með farna kommóðu úr BabySam sem við keyptum okkur ódýra á barnlandinu fræga, og er hún að verða eins og ný!! Ætlum að nota hana sem skiptiborð fyrir erfingjann. Gat varla hætt að pússa og gera þetta var svo gaman en bakið var farið að öskra stopp og ætli maður verði ekki að hlusta á það í svona ásigkomulagi.



Meanwhile var Daði að pússa og knúsa nýja Galloperinn sinn sem hann ætlar að gera upp.


Jæja ég er svosem fegin að hafa loksins ákveðið að byrja blogga, meiri ástæða til að taka myndir og sortera þær rétt. Og það verður gaman að kíkja yfir þetta óléttutímabil hér á blogginu þar sem óléttuþokan er sko heldur betur farin að segja til sín!



Saturday, September 1, 2012

22.vikur

22 vikur
Sko það er komin smá bumba! er komin 22 vikur í dag og set inn mynd sem sönnunargögn að það er víst komin bumba!!
Ætla byrja að koma með smá fréttir af og til, svona til ykkar sem eruð svo erfið og getið ekki búið á Íslandi og verður þetta mestmegnis babyfréttir :) 
Bíð spennt eftir að bumban fari að poppa út svo fólk fari nú að trúa því að ég sé ólétt.
Spörkin aukast með hverjum deginum, miklir fimleikar eiga sér stað þarna inni, sérstaklega á kvöldin þegar maður situr afslappaður þá er sko sparkað og látið vita VEL af sér og það er ekkert nema æðislegt, kannski ekki skrítið þar sem plássið lítur nú ekki út fyrir að vera mikið. Þetta verður raunverulegra með hverjum deginum að það sé manneskja að stækka inní manni og getum við ekki beðið eftir að fá hana í hendurnar.
Ógleðin er því miður enn að hrjá mig, hún er samt ekki nærru því eins slæm og þegar ég var á 3ja mánuði enn hún er enn til staðar og má þetta nú alveg fara að hætta!!

20 vikna sónar
Verð nú að láta myndir af aðalmanneskjunni fylgja með:) Fengum svona krúttlega tásumynd með.