Wednesday, September 19, 2012

bloggí blogg

Jæja ætli maður þurfi ekki að blogga ef maður ætlar að halda uppi bloggsíðu ? :)
Var í vaktarfríi í dag og dagurinn gat ekki verið fallegri, fullkomið haustveður!!
Ég ákvað líka að vera dáldið myndarleg og baka kökur! Jebb mjög svo góðar ef ég segji sjálf frá, og fór með nokkrar til Ósk og Albert sem voru í nýju fínu íbúðinni sem þau voru að fjárfesta í. Ekki veitti af að koma með smá orku til verkamannanna sem sátu sveittir að gera upp íbúðina. 
Nomm nomm :)

Litla daman hefur það bara gott, lætur vita af sér regulega og allir verkir allt það er bara hætt. Ég hringdi í ljósuna fyrir svona viku því þá var ég bara að drepast í bakinu og í mjöðmunum og niður í lappir. Hún sagði mér að fara til læknis og fékk ég tíma í dag sem ég reyndar afpantaði því næstum leið og ég lagði á ljósuna eftir að hafa talað við hana, þá bara hættu allir verkir!! weird right?? Hef EKKERT fundið til og ég sem var að deyja úr verkjum og gat varla hreyft mig á kvöldin reglulega í allavega 2 mánuði áður en ég LOKSINS hringdi.

Svo suma daga, gleymi ég næstum að ég sé ólétt! En bumban fer þó stækkandi. Daði er líka rosalega duglegur að spjalla við litlu stelpuna sína. 
Hér er hann að reyna hlusta á hjartsláttinn hennar, því í einu iphone pregnant appinu var sagt að hægt væri að heyra hjartsláttinn á 24 viku ef allt væri hljótt og maður myndi einbeita sér að hlusta. Þarna lá hann heillengi :)

 Við kíktum aðra helgina í röð í sveitina um helgina í réttir, og þessi mynd lýsir helginni dáldið vel
BEFORE AND AFTER :)
Þeir félagar hafa örugglega spjallað saman um litaval á fötunum sínum áður en við lögðum af stað.
Hér eru nokkrar myndir frá helginni, tók þó næstum engar. En nú er ég hætt að vera svona léleg að blogga!

    

     

BEST Í SVEITINNI!!!

2 comments:

Ósk said...

Jeij blogg! Og fullt af myndum :D

Takk aftur fyrir okkur, þessar kökur eru geðveikar og þú mátt endilega senda mér uppskriftina!

Ótrúlega sæt myndin þar sem Daði er að hlusta :) Albert einmitt heyrði hjartsláttinn utan á bumbunni um daginn og var alveg "ómægod, ómægod ég er að heyra hann!" :D

Lára Ósk said...

Verði ykkur að góðu! já skal senda þér uppskriftina. En ég vildi að ég gæti hlustað á hjartsláttinn í bumbunni! það væri gaman :)