Tuesday, September 4, 2012

Að borða 18 rétti er erfitt!

Enn einn fallegur haustdagur var í dag. Og í tilefni þess ;) var veitingastaðurinn nýji niðri vinnu "formlega"opnaður þ.e.a.s Elding Bistro. Og til þess að hafa dásemdarmat mat á staðnum var aðal liðið kallað í generalprufu í fyrradag til að smakka allann, JÁ ALLANN!! matseðillinn og dæma hann!!
Þetta átti allt að gerast á einu kvöldi, en þegar við vorum komin í rétt 12 þá gátum við bara ekki meira, ég var hætt að finna bragð, hætt að geta andað, og greyið barnið mitt var farið að sparka í mig á fullu örugglega kvartandi um plássleysi. Og inní þessum 12 réttum voru franskar, nachos og fleira on the side ekki talið með. Svo ákveðið var að hætta það kvöld og hafa framhald kvöldið eftir. Vínsmökkun var í gangi líka, og vínþefun hjá mér svo þið getið rétt ýmindað ykkur og engu var sparað!:) Þessa nótt gat ég ekki sofnað fyrr en hálf 4. Vaknaði líka með þetta þvílíka bakflæði. Það er búið að vera hrjá mig seinustu daga og ekki batnaði það nú að fara sofa svona saddur!
Kvöldið eftir kláruðum við að smakka afganginn, 3-4 aðalrétti og 3 guðdómlega eftirrétti!!mmmmm og ekki kvartaði ég yfir því.

Í dag var fyrsti dagurinn minn sem ég lít actually út fyrir að vera ólétt. Það sást almennileg bumba, mjög ánægð með það, hún bara poppaði út í nótt, spurning þó hvort að allur þessi matur seinustu daga sé eitthvað að spila inní :) Eða hún er allavega stór á mínum mælikvarða þó að allir séu ósammála því. Reyndar sagði Daði VÓ við bumbunni þegar hann sá mig í dag eftir vinnu. Og honum fannst hún hafa stækkað hellings síðan í gær.
Líður bara nokkuð vel, nema að bakflæðið er orðið dáldið þreytandi og bakið á mér er stundum að stríða mér og get ég stundum ekki stigið fram úr rúminu á morgnana, og á kvöldin er ég eins og ellismellur að standa uppúr stól eða sófa útaf bakinu.
Og svo það nýjasta sem byrjaði í gær var að ég fékk reglulega stingi undir handakrikana svona dáldið rafmagnaða. Veit ekki hvort að það sé enn eitt óléttumerkið!

svona leit morgunmaturinn minn útí gær!! með vibba myglublett. Ég hringdi í MS eins og bitur kona í breiðholtinu og kvartaði...
Og þetta fékk ég í skaðabætur, ekki slæmt :)
Hvað ef ég hefði hrist dolluna aðeins og bara borðað mygluna með bestu lyst!!...OJ...ÆL

3 comments:

Kolla said...

oojjjjj nákvamlega ...ég hristi alltaf svona jógúrt .... :( æji ég vona að bakið fari að lagast, en hvað með að koma með eina bumbu mynd fyrst að hún hefur stækkað :)

Lára Ósk said...

oj get ekki hugsað til þess ef ég hefði hrist dolluna!!...
En já kannski ég skelli inn einni bumbumynd á morgun :)

Ósk said...

OJ!
En ég hlakka til að sjá bumbumynd! Albert sagði einmitt "VÓ" einn daginn þegar ég kom heim úr vinnunni, þá hafði hún bara poppað út overnight :D