....af buxum!! :) Fór í dag í "Tvö Líf" að kíkja á preggóbuxur. Fór semsagt á bumbuhitting í gær, mættum þar 10 saman og það var mjög gaman hjá okkur, við vorum svo lengi að við fórum út nánast með starfsmönnunum þegar þær voru búnar að loka, því við sátum svo lengi. En allavega þar voru 2 stelpur að tala um þessar æææðislegu buxur og ég ákvað að fara og kíkja. Og jább þær höfðu rétt fyrir sér, fann einar sem ég ætla aldrei að fara úr :) þvílíkur munur að komast í óléttubuxur! Vildi að ég hefði verið löngu búin að gera þetta :) þó að það sé líka alltaf þægilegt að vera bara í leggings!
En áður en ég fór þangað þurfti ég að kíkja í rúmfatalagerinn og ég labbaði þangað inn heldur betur töff á því!! Þegar ég var búin að ganga allt bílastæðið og komin inní búðina þá var ég að pæla hvað þetta væri eiginlega að þvælast fyrir mér í löppunum á mér. Þá var þar bara peysa sem hékk útúr úlpunni minni niður á hné, eða bara önnur ermin!! Great! Fór nebblilega úr úlpunni og peysunni á sama tíma í gær svo þær voru svona fastar saman. Svo í dag fór ég í aðra peysu, smellti mér í úlpuna og dró hina peysuna á eftir mér..CLASSY!!
Skráði mig líka á tvö námskeið í dag! Ákvað að sparka í rassinn á mér áður en það verður fullt á þau, þetta eru æsispennandi námskeið ; Fræðsla um Brjóstagjöf og svo undirbúningur fæðingar þar sem ég fékk seinasta plássið!

Hér er svo ein bumbumynd 4 mánuðir - 5 mánuðir - 6 mánuðir
úff trúi varla að ég sé að setja þetta hér inn!
4 comments:
Geggjaðar myndir! Ótrúlega gaman að sjá þetta svona hlið við hlið :D
En tókst þú síðasta plássið?? Það er allt snældu í bumbuhópnum mínum því við erum nokkrar sem komumst ekki á fæðinganámskeið fyrir fæðinguna því það er allt fullbókað :/ Finnst eiginlega að þær ættu að bæta við kvöldum fyrst þetta er svona vinsælt!
SVO samála Ósk, geggjað gaman að sjá svona myndirnar saman. Maður sér miklu betur munin... þetta eru svo krúttlegar myndir.... :)
Já ég hringdi til að panta brjóstagjafanámskeiðið og svo byrjaði hún að tala um fæðingarnámskeiði. Mér fannst það of snemmt að fara á það en henni fannst það ekki, þær settu þetta inn í gær víst og allt fullt strax! Það er víst ekki nóg af fólki til að kenna þetta. Ég hélt þú værir búin að panta unga dama!!! hver var að reka á eftir mér í gær haaaaa???? humm??
þeinkjú...úff get ekki horft á þessar myndir, finnst ég eitthvað svo silly :) sérstaklega miðjumyndin, ein uppgefin!! hehe
Post a Comment