26 vikur í dag og vaknaði með þessa svaka bumbu!
Sem þýðir að vika 27 hefst á morgun og þar með þriðji hluti meðgöngunar! jæks
VIKA 27
Móðir:
- Nú þyngist þú reglulega alveg fram að viku 36. Ómæ er búin að þyngjast um 5-6 kg nú þegar!
- Í lok þessarar viku gætiru upplifað öndunarerfiðleika þar sem legið liggur nú þétt að rifbeinunum og lungun hafa ekki nógu mikið pláss
- Legið þenst út
- Hreyfigeta minnkar - mörgæsalabb :)
- Mundu að drekka vel af vatni og hafa fætur uppá stól þegar þú situr getur verið gott
Barn:
- Þyngd barnsins er nú 1 kg og hæð þess er 34cm. Hvar kemst það fyrir eiginlega??
- Augnlok barnsins geta nú opnast og lokast
- Hikstar. Ójá hún er sko farin að hiksta heldur mikið og er langt síðan
- Gerir öndunaræfingar
- Safnar holdi
Þannig er nú það, trúi varla að ég sé komin svona langt! Samt er heill hellingur eftir.
Annars bara líður mér rosa vel og allt gengur sinn vanagang nema að fötin eru farin að verða aaaaðeins þrengri.
Í gær fór ég sykurþolspróf, er að taka þátt í rannsókn um sykursýki á meðgöngu og vantaði þeim "fit" óléttar stelpur til að vega uppá móti og græði ég 30 mín sónar á þessu þegar ég er komin 36 vikur. Svo það var helsta ástæðan að ég nennti þessu :)
Fór semsagt niður á spítala í gær til að láta dæla úr mér blóði, mætti kl 8 og ég var þarna ásamt þessari svaka frekju, tælenskri stelpu hún var nú samt ekki í þessari rannsókn. Hún talaði hvorki íslensku né ensku og skildi ekkert, hún skildi varla hvað hún væri að gera þarna.
Þetta tók svona ca 2 klst og 30 mín og vorum við í biluðum lazyboy stólum inní pínkuponsu herbergi. Ég var undirbúin og tók bók með mér en tælendingurinn hélt að þetta myndi taka 2 mín og var ekkert undirbúin og var allan tímann að reyna tala eitthvað við mig og ég skildi EKKERT!!! og svo var hún alltaf á stólnum mínum og jesús var að farast úr pirring á henni.
Tælendingur: Edu badda húsa núna?
Ég: er að lesa og lít upp til hennar og bara ha?
Tæl: Edu húsa bada kaski ekki?
Ég: hmm ég skil ekki?
Tæl: hehehe ekki húsa!
Ég: Veitiggi! og held áfram að lesa.
1 mínúta líður
Tælendingur: lítid badda þadda og snertir á mér magann!
Ég: ég að lesa og lít upp uuu já þarna er lítið barn
Tæl: nei 7 lita núna nomber
Ég: HA?
Tæl: ég 1 ár og 5 ár í ísland og tala ítlantka
Ég: já vá dugleg! ?? (uuu what the hugsa ég og held áfram að lesa)
Tæl: tala bada nuna 8 og svo hættir hún því hún sér að ég hef ekki áhuga á að tala við hana,
3 sek seinna byrjar hún aftur með nýjar setningar!! og þessu hætti hún ekki!! hún tók samt smá pásur inná milli meðan hún var að reyna leggja sig GAHHHHH!!
Hér á myndunum er þetta fína herbergi sem við vorum í og leiðindar gellan þarna á stólnum mínum og var alltaf að setja tærnar á sér í blöðin þarna á borðinu..ojtsTælendingur: Edu badda húsa núna?
Ég: er að lesa og lít upp til hennar og bara ha?
Tæl: Edu húsa bada kaski ekki?
Ég: hmm ég skil ekki?
Tæl: hehehe ekki húsa!
Ég: Veitiggi! og held áfram að lesa.
1 mínúta líður
Tælendingur: lítid badda þadda og snertir á mér magann!
Ég: ég að lesa og lít upp uuu já þarna er lítið barn
Tæl: nei 7 lita núna nomber
Ég: HA?
Tæl: ég 1 ár og 5 ár í ísland og tala ítlantka
Ég: já vá dugleg! ?? (uuu what the hugsa ég og held áfram að lesa)
Tæl: tala bada nuna 8 og svo hættir hún því hún sér að ég hef ekki áhuga á að tala við hana,
3 sek seinna byrjar hún aftur með nýjar setningar!! og þessu hætti hún ekki!! hún tók samt smá pásur inná milli meðan hún var að reyna leggja sig GAHHHHH!!
Það var tekið úr okkur blóð 3 sinnum á klukkutíma fresti og átti ég að fasta frá miðnætti daginn áður, svo var þetta loks búið, fór heim og var ekkert smá þreytt, settist uppí sófa áður en ég ætlaði að fá mér að borða og steinsofnaði en kannski bara svona í hálftíma og ég vaknaði aftur i þessu svakalega svitabaði með svaka skjálfta...ÚPS enda hljóp ég til að borða allt sem ég fann! Litla kannski ekki alveg sátt með mig þarna!
Úff búin að pústa núna :) Bless
1 comment:
BÚMBA! :D
Ég varð bara pirruð við að lesa um þessa konu! SJARABB OLREDDÍ!
Post a Comment