Rólegur sunnudagur í dag, bræla úti svo ekki er farið á sjóinn. 3ji dagur í vinnu í dag og 6 dagar eftir í þessari vinnutörn og strax steinrotaðist ég í gær þegar ég kom heim og lagðist á koddann! Fórum í kjötsúpu til tengdó í gær og fékk eitt stykki klippingu í leiðinni...very nice og Daði reyndar líka. Fínt bara að ljúka þessu af við eldhúsborðið þarna í gær, er búin að vera á leiðinni í 100 ár!
Jebb 90 DAYS TO BABY...rólegur tími að fljúga í burtu! Vigtin náði nýjum hæðum í morgun! búin að þyngjast núna um 6-7 kg og enn eru 3 mánuðir eftir. Mér finnst ég ekki geta stækkað meira, fannst eins og skinnið á mér væri að rifna í gær ef ég var eitthvað að teygja mig of mikið. Sem betur fer samt eru engin slit ennþá búin að líta dagsins ljós 7-9-13.
Matarlystin er líka farin að aukast heldur betur, nokkrum mínútum eftir að ég var búin að borða hádegismatinn í dag var ég strax farin að hugsa um eitthvað annað að borða þó ég væri að springa.
Litla sparkar og sparkar og hreyfir sig og hikstar á fullu, alltaf jafn krúttlegt, nema þegar hún sparkar í pissublöðruna.
Það á eftir að vera mjög skrítið þegar meðgangan er búin að hafa enga óléttubumbu eða lítið kríli inní sér sparkandi, því þetta er orðið svo eðlilegt. Maður fer að hafa áhyggjur þegar hún er ekki búið að hreyfa sig í smá tíma, það á eftir að taka tíma að venjast þegar þessu er lokið að hafa engar hreyfingar inní sér eða spörk og læti.

Svo er bumbuhópa hittingur í kvöld, alltaf gaman að hitta þær og tala bumbumál, og þar verður sko nóg af kökum og kræsingum þar sem margar svangar óléttur munu hittast. Getið rétt ýmindað ykkur :)














