Sunday, December 16, 2012

37 vikur og 3 to go!!

Ætlaði að ná mynd af löppinni hennar litlu sem stóð út úr bumbunni næstum en hún var ekki lengi að taka hana tilbaka þegar kveikt var á myndavélinni.
Í dag eru akkurat 20 dagar í settan dag, og í nótt svaf ég ALLA nóttina (auðvitað fyrir utan nokkur hundruð pissuferðir) Fór uppí um 11 í gærkvöldi alveg uppgefin og fór ekki framúr fyrr en um hálf 10 í morgun, vá sko þetta leist mér vel á. Enda orðin örmagna. Seinustu dagar hafa verið voða erfiðir eitthvað, var ælandi og ælandi, fann í fyrsta skipti að blóðþrýstingurinn væri ekki alveg lagi þar sem mér leið ótrúlega illa með yfirliðstilfinningar veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa því, var með endalausan pirring í öllum útlimum og langaði helst til að höggva af mér lappirnar útaf pirring. Svo í gær var ég aftur ælandi og fékk svo svaka blóðnasir í leiðinni, vissi ekki hvað væri í gangi. Er oft búin að fá blóðnasir á meðgöngunni sem fylgir víst en ekki fengið allt svona í einu. Þá langaði mig bara að fara uppí rúm og sofa og vakna 5.janúar og fá hana í heiminn :)
En ég er sko heldur betur endurnærð í dag eftir allan þennan svefn og líður vel. Alveg óþolandi að geta ekki gert neitt samt!! Það er fullkomið vetrarveður úti, blár himinn og ekki ský á himni og mig dreymir um að fara útað labba, hjóla, labba esjuna...BARA EITTHVAÐ að hreyfa mig!!! En þetta fer að styttast, gúffa bara í mig smákökur og kanilsnúða í staðinn og fitna aðeins þar sem ég hef ekkert betra að gera :) og safna mylsnu á bumbuna á mér, ótrúlegt hvað þessi bumba nær að grípa :)
Fröken þreytt komin 37 vikur


Wednesday, December 12, 2012

12.12.12

Það hefði nú verið dáldið flott ef lillan hefði ákveðið að koma í dag og fengið kennitöluna 12.12.12. En svo er ekki svo þá er ekkert annað í boði en kennitalan ??.01.13 og hananú :)
36v+4d
Fréttamiðillinn sagði að 5 börn hefðu fæðst á landspítalanum í dag þann 12.12.12 kl: 12.12. hmmmmm eitthvað er ég ekki alveg að trúa því, held það hafi nú eitthvað verið fiffað við tímann, dont you think?

En ég er komin 36 vikur og 4 daga sem þýðir aðeins 24 dagar í ungu dömuna!!
Fórum í mæðraskoðun í gær og allt leit vel út, nema að legbotnshæðin er núna komin fyrir neðan kúrfuna sem þær vildu að myndi ekki gerast eða 30 cm svo þær vilja senda mig aftur í vaxtasónar til að sjá hvort hún sé ekki að stækka eðlilega en við fengum ekki tíma fyrr en 18 des svo það verður löng bið þangað til.
En ég er búin að þyngjast vel, er komin uppí 13 kg (fjúhh), og rannsóknin í seinustu viku sýndi gott blóðflæði í gegnum naflastrenginn og allt kom flott út hjá litlu mús svo þær voru nú ekki með miklar áhyggjur. En ef vaxtasónarinn sýnir að hún sé ekki að nærast nógu vel þarna inni þá þarf að koma henni út og næra hana frekar á brjóstamjólk heldur en að halda áfram að vannærast inní bumbukoti.
En EF svo verður þá verð ég komin 37 vikur og má eiga á hreiðrinu eins og planið mitt var svo þetta verður allt gott.
En við erum enn að einblína á settan dag 5.janúar en ef hún vill koma fyrr þá verður það bara æðislegt líka og fáum lítið jólabarn :)
En þetta kemur allt í ljós í næstu viku og erum við bara bjartsýn á þetta allt.

Hún er ekki búin að láta rifbeinin mín vera í dag, sparkar og sparkar og maginn á mér gengur um eins og öldusjór en um leið og ég ætla að fara taka video þá verður hún eitthvað feimin og hættir.

Annars er EKKERT að frétta, ligg heima alla daga og kemst ekki neitt. Langar að loka fyrir gluggatjöldin þegar það er gott veður, hvað er betra en að fara út í göngutúr á fallegum degi í kulda, frosti og logni í öllum jólaljósunum! Það kemur víst alltaf næsta ár :)

Það er sí fleiri að poppa út börnunum í bumbuhópnum mínum, 2 stelpur áttu á laugardaginn sem voru settar 3 og 5 janúar, og í kjölfarið að því kláraði ég að pakka í spítalatöskuna til að vera öllu viðbúin :)
36v+4d BÚMBA
Það á bara eftir að koma vöggunni saman og taka kannski pínu lítið til inní herbergi og stytta gardínurnar, þá er allt reddý fyrir litlu músina að koma :)

Thursday, December 6, 2012

Ái

Ái hvað það var vont að ná hringnum af mér, en það tókst á endanum með miklum átökum og miiikillli sápu. Ákvað að taka hann af mér þegar ég vaknaði í morgun með óþægindatilfinningu í puttunum. Mér leið svo þrútinni eitthvað, eins og ég hefði verið úti í frosti og komið svo inn og fingurnir væru að hitna aftur með miklum náladofum. Þessi mynd fyrir neðan er tekinn núna 17 tímum seinna! Held þetta kremjufar sé ekkert að fara!

35 vikur og 5 dagar!! Gæti alveg eins ekki verið preggó framaná séð, like it ;)

Wednesday, December 5, 2012

36 vikna vaxtarsónar

Loksins rann upp dagurinn sem við erum búin að bíða eftir í marga mánuði, að komast í 36 vikna vaxtasónarinn og sjá litlu snúlluna okkur. Ég var gegnsæ af þreytu eftir aðeins 2 tíma svefn frá því daginn áður og loksins þegar ég fæ að fara út úr húsi þá var ógeðslegt veður úti, rok, rigning og þvílíkt þungbúið.

Mættum niðrá spítala ljósan spjallaði smá við okkur og svo beint í sónar. Það fór ekki á milli mála að það væri lítil stelpa á leiðinni, allt leit rosa flott út, hjartsláttur, blóðflæði, naflastrengurinn, beinabygging og fleira sem við vissum ekki alveg hvað hún var að skoða og bara allt saman. Ljósan fór í gegnum allt alveg kyrfilega vel enda vorum við í sónarnum í allavega í 40 mín, og þurfti ég regluglega að leggjast á hliðarnar þar sem það er orðið mjög erfitt að liggja á bakinu til lengdar, var orðin andstutt þar sem litla er farin að þrýsta á allt saman.
Litla var mjöööög dugleg að sparka og var ljósan farin að tala við hana í gegnum skjáinn og biðja hana um að vera ekki að hreyfa sig svona mikið, hún er líka algjör orkubolti og mætti alveg róa sig smá suma daga eða allavega láta rifbeinin mín vera :)
Fengum svo líka smá þrívíddarsónar á andlitið hennar, það fyrsta sem ég sá voru bollukinnarnar en það fyrsta sem ljósan sá voru varirnar hennar, hún var bara "Jiii eru þið að sjá þessar kossavarir!! jiii hahah þetta er ekkert smá...eru þið að sjá þetta?? Jii hvað hún á eftir að vera sæt með þessar kossavarir" Og svo gaf hún okkur myndir til að eiga af flottu kossavörunum.
Það tók samt sinn tíma að fá almennilega að sjá andlitið þar sem hún var alveg límd uppvið legið og var heldur búin að koma sér vel fyrir í notalegri stellingu, krosslagði lappirnar og fékk sé smá lúr.

Eina sem var athugavert er að hún er frekar lítil. Ljósan spurði mig líka hvort ég væri búin að þyngjast lítið þegar ég labbaði inn, þar sem ég væri svo nett en svo er EKKI þar sem ég er búin að þyngjast um 12 kg!! Svo það er allt eðlilegt.
Hún er 2490gr eða 10 merkur sem er frekar lítið en allt í lagi og þarf að athuga í næstu viku hvort ég þurfi að fara aftur í vaxtarsónar til að fylgjast með hvort hún sé ekki pottþétt að stækka. Ég er by the way komin 35v + 4 daga.
Og ef hún er ekki nógu dugleg að stækka þá þarf í framhaldi að því að íhuga gangsetningu og jafnvel áhættumeðgöngu sem þýðir þó bara að koma í fleiri skoðanir til að fylgjast með, en það þarf alls ekkert að vera og ekkert til að hafa áhyggjur af þar sem hún er alveg tilbúin að koma í heiminn og allt lítur rosalega vel út. Hún er bara nett og sæt :) Hún er skorðuð og liggur í bestu stöðu og mun örugglega koma í heiminn með stút  á vörum eins og Ásdís Rán miðað við lýsingarnar hjá ljósunni :)

Svo við komum bara alglöð og sæl úr þessari skoðun í dag og getum ekki beðið að fá að knúsa lilluna okkar;)

Tuesday, December 4, 2012

Farðu heim til þín bjúga!!

Hvað er skemmtilegra og flottara en að vera með pulsuputta! Ég ætlaði að láta minnka hringinn minn aftur í sumar því hann var orðinn svo laus á mér og var mjög auðvelt að renna honum af, en ákvað svo að bíða þar til eftir meðgönguna svona ef hann myndi bara passa vel á stærsta bumbutímabilinu sem er núna!! Puttinn á mér væri sprunginn af ef ég hefði minnkað hann!! Jæks, suma daga er hann pikkfastur eins og í dag og aðra daga er hann allt í lagi! Farin að fá smá innilokunarkennd:/

Monday, December 3, 2012

Update

33 dagar í litlu snúllu! Ég fékk smá reality check í gær þegar ein í bumbuhópnum mínum eignaðist stelpuna sína á sunnudaginn og allt gekk eins og í sögu nema bara að litlan var dáldið lítil en ekkert amaði að enda var hún alveg tilbúin að koma í heiminn þar sem hún var sett 3.jan.
Ég vona nú bara að litlan mín sé ekki svona spennt fyrir jólin og komi bara um 5.janúar. Ég held nú samt að það sé komin einhver jólaspenningur í hana, var ekkert farið að lítast á blikuna í gærkvöldi þar sem hún sparkaði svo rosalega í mig og mér leið eins og ég væri ekki að höndla þetta. Svo var hún farin að þrýsta á æðar og taugar og eitthvað álíka þar sem ég fékk svona rosalegan þrýsting í hausinn eins og ég væri ekki að fá neitt blóð eða súrefni í hausinn. Og með þessu fékk ég þessa þvílíku píluverki í klofið og var farin að halda að hún væri bara að fara koma. En þetta eru víst bara voða krúttlegir fyrirvaraverkir...NOT!

Ég get ekki enn sofið, sofnaði t.d kl 11 Í MORGUN, eftir að hafa legið andvaka í alla nótt, sem gerði það að verkum að ég svaf til 3 í dag. Svona er þetta búið að vera viku eftir viku og ég er orðin svooooo þreytt á þessu. Langar bara að geta sofið á nóttunni og vakna snemma og eiga daginn í chill :)
Byrjaði að taka magnesíum í seinustu viku eða "slökun" það hjálpaði mér aðeins og þá náði ég að sofna kannski á miðnætti en vaknaði svo 2 tímum seinna útsofin og lá þá andvaka þar til daginn eftir. Ég sofnaði þó í smá tíma. Svo meðalsvefn minn er svona samanlagður 4 - 5 tímar. 
Og til að bæta ofan á þetta þá er ógleðin byrjuð aftur..Úff það er hrikalegt að þurfa kúgast, æla og pínast með bumbuna útí loftið, og held ég að sú litla sé ekki parsátt með mig að ég sé að þrýsta svona á hana þar sem plássið þarna inni er ekki neitt.

Ég er búin að á neðstu línunni í bumbukúrvunni alla meðgönguna, og er ljósan að vonast til að það haldist alla meðgönguna og fari ekki neðar. Fór seinasta mánudag til hennar og þá var daman búin að skorða sig og bara tilbúin að koma í heiminn. Mér fannst ljósan voða mikið að tala um það að ég gæti alveg farið að eiga eftir 3 vikur (2 vikur núna), en ég ætla mér að ganga alla meðgönguna framyfir áramót og þá skal ég glöð fá hana í heiminn :)

Svo förum við í vaxtasónar á miðvikudaginn, hlakka ótrúlega til þó svo að ég sé líka ótrúlega stressuð fyrir því. Veit eiginlega ekki afhverju, kannski aðallega yfir því að eitthvað gæti komið í ljós sem væri að hjá okkur. En ég veit það þýðir ekkert að hugsa svoleiðis!!

Við fórum í Ikea í seinustu viku til að kaupa hitt og þetta fyrir litlu mús og jólin, þar rúntaði Daði með mig í hjólastól um Ikea þar sem ég get ekki gengið almennilega lengur útaf verkjum og ekki ætla ég að taka sjensinn á neinu. Það var mjög sérstakt að keyra um í hjólastól, við tókum alveg sérstaklega eftir því hvað fólk horfði á okkur helst með vorkunnaraugum og örugglega að pæla í því hvað hefði komið fyrir. Og þegar krakkar voru að hlaupa eitthvað og tala og tala við foreldra sína og steinþögðu svo þegar við komum nær þeim og þá var bara glápt. 
 
Litlu snúllufötin sem eru sætust í heiminum, hlakka svo til að fá lítinn líkama í þessi föt :)
                                      
Á þessu heimili var búið að setja upp allt jólaskraut um helgina, kláraði einnig að þvo barnafötin og gera allt til svo núna tekur bara við enn meira chill. En það er ekkert smá notalegt núna það er orðið svo jólalegt og kósý, er sko alveg að LOVA það. Daði keypti stöð 2 og fjölvarpið fyrir mig svo ég hafi nú eitthvað að horfa á í vinnunni minni sem er að liggja, liggja, liggja og liggja.

Við Daði skruppum í bílskúrinn heima hjá mömmu og pabba til að taka bumbumyndir fyrir okkur til að eiga sjálf. Ætla samt að lauma 2 hérna inn :) Þarna er ég komin akkurat 35 vikur!

 
Pabbakoss :)
Bjúgan og maðurinn á leiðinni í jólahlaðborð!
Kíktum aðeins í jólahlaðborð hjá Icelandair um daginn, stöldruðum stutt við útaf fatlafólinu mér en við vorum nú ekki ein með það. Við sátum saman 5 pör á hringborði a.k.a frjósemisborðinu :) Og þar vorum við 3 pör komin á steypirinn...ein sett 28 Des minnir mig, svo við sem erum sett 5.janúar og svo hin sett 6.janúar! Frekar fyndin tilviljun, en það var samt mjög gaman að hafa fleiri í kringum sig sem máttu ekki borða helminginn af matnum á hlaðborðinu ;)





Friday, November 23, 2012

Zombie

Klukkan er 6:44 og ég get ekki sofnað!! Í gærnótt sofnaði ég loks um 7 leytið um morguninn eftir að hafa verið andvaka alla nóttina, fór svo á fætur um hádegi, svo þar fékk ég alveg 5 tíma svefn. Sem var nokkuð gott! Þegar ég fór uppí rúm áðan, þá var ég alveg pottþétt á því að geta sofnað strax því ég var að deyja úr þreytu. Ótrúlegt en satt þá sofnaði ég um miðnætti, og þegar ég vaknaði aftur þá var ég svo endurnærð eitthvað og hugsaði með mér YESS þarna svaf ég loks alla nóttina og þurfti ekkert að vakna til að pissa...næs, leit á klukkuna sem var bara 1.45!!! ég svaf bara í klukkutíma og 45 mínútur!!! Hvað er að gerast!! Núna 6 klukkutímum seinna er ég enn ekki farin að sofa.
Fór að lesa smá til að láta það svæfa mig, en það kannski virkar ekki nógu vel þegar þú lest draugabók eftir Yrsu, ég var farin að lesa svo hratt því ég var svo hrædd hvað var að fara gerast...var orðin alltof stressuð svo ég hætti því :)
Prófaði að setja róandi tónlist á og kreista augun á mér saman og telja rollur. Endaði með að setja á einn þátt og glápti á hann....prófaði svo aftur að liggja og rembast við að sofna....spilaði bubbles í símanum...fór reyndar líka 30 sinnum fram til að pissa og fékk 100 sinnum ælubragð uppí mig, þetta bakflæði er ekkert grín!! Það er svoleiðis að fara með mig, þrátt fyrir að poppa rennie hægri vinstri . Ohh þetta er orðið svo þreytandi, svona er þetta svefnleysi búið að vera seinustu vikurnar.
Sú litla er samt búin að vera halda mér félagsskap með sínu hnuðli og brölti, alltaf að hugsa vel um mömmu sína :)
Það heyrist í öllum fara á fætur í blokkinni, starta bílunum sínum og skafa hélið af gluggunum, á meðan ætla ég að gera eina heiðarlega tilraun í viðbót að sofna.

Góðan dag/ NÓTT