Wednesday, December 12, 2012

12.12.12

Það hefði nú verið dáldið flott ef lillan hefði ákveðið að koma í dag og fengið kennitöluna 12.12.12. En svo er ekki svo þá er ekkert annað í boði en kennitalan ??.01.13 og hananú :)
36v+4d
Fréttamiðillinn sagði að 5 börn hefðu fæðst á landspítalanum í dag þann 12.12.12 kl: 12.12. hmmmmm eitthvað er ég ekki alveg að trúa því, held það hafi nú eitthvað verið fiffað við tímann, dont you think?

En ég er komin 36 vikur og 4 daga sem þýðir aðeins 24 dagar í ungu dömuna!!
Fórum í mæðraskoðun í gær og allt leit vel út, nema að legbotnshæðin er núna komin fyrir neðan kúrfuna sem þær vildu að myndi ekki gerast eða 30 cm svo þær vilja senda mig aftur í vaxtasónar til að sjá hvort hún sé ekki að stækka eðlilega en við fengum ekki tíma fyrr en 18 des svo það verður löng bið þangað til.
En ég er búin að þyngjast vel, er komin uppí 13 kg (fjúhh), og rannsóknin í seinustu viku sýndi gott blóðflæði í gegnum naflastrenginn og allt kom flott út hjá litlu mús svo þær voru nú ekki með miklar áhyggjur. En ef vaxtasónarinn sýnir að hún sé ekki að nærast nógu vel þarna inni þá þarf að koma henni út og næra hana frekar á brjóstamjólk heldur en að halda áfram að vannærast inní bumbukoti.
En EF svo verður þá verð ég komin 37 vikur og má eiga á hreiðrinu eins og planið mitt var svo þetta verður allt gott.
En við erum enn að einblína á settan dag 5.janúar en ef hún vill koma fyrr þá verður það bara æðislegt líka og fáum lítið jólabarn :)
En þetta kemur allt í ljós í næstu viku og erum við bara bjartsýn á þetta allt.

Hún er ekki búin að láta rifbeinin mín vera í dag, sparkar og sparkar og maginn á mér gengur um eins og öldusjór en um leið og ég ætla að fara taka video þá verður hún eitthvað feimin og hættir.

Annars er EKKERT að frétta, ligg heima alla daga og kemst ekki neitt. Langar að loka fyrir gluggatjöldin þegar það er gott veður, hvað er betra en að fara út í göngutúr á fallegum degi í kulda, frosti og logni í öllum jólaljósunum! Það kemur víst alltaf næsta ár :)

Það er sí fleiri að poppa út börnunum í bumbuhópnum mínum, 2 stelpur áttu á laugardaginn sem voru settar 3 og 5 janúar, og í kjölfarið að því kláraði ég að pakka í spítalatöskuna til að vera öllu viðbúin :)
36v+4d BÚMBA
Það á bara eftir að koma vöggunni saman og taka kannski pínu lítið til inní herbergi og stytta gardínurnar, þá er allt reddý fyrir litlu músina að koma :)

5 comments:

Kollaa said...

JJJiiii hvað litla herbergið er sætt :) .... ég er orðin svo spennt, ég er alveg tilbúin að fá littlu í heimin núna :)

Inga B said...

Rosa ertu flott bumbubína og allt að verða reddý ;)

Fyrst að þú átt að bíða fram til 18 með að fara í vaxtarsónar getur ekki verið að þeir hafi miklar áhyggjur af litlu sparkmínu. Hún er kannski að klaga þig undan hungri með öllum þessum spörkum :)

Hlakka svooooo....til :)

Birna Run said...

Vá thid Ósk erud ekkert smá nettar med thessar óléttur. Ég sver thad ad ég verd komin med stærri bumbu eftir 24.des en thú! Food baby!!
Og hey eitt enn, ég áttadi mig á ad ég hef aldrei komid heim til thín :O Má ég heimsækja thig um jólin?


Ósk said...

naww hvað herbergið er sætt! :D

Lára Ósk said...

Takk takk ladies :) Já ég er hætt að pæla(ummm allavega reyni) í þessu þar sem þær eru að láta mig bíða til 18 des..Bara 4 dagar í það :)
Haha Kolla það er gott að heyra að þú sérst tilbúin að fá hana í heiminn núna, þá hætti ég að hafa áhyggjur ;) híhí

Birna þú ert ávallt velkomin í heimsókn!! Ég bíð spennt með kökur til að fylla á bumburnar hehe :)