Klukkan er 6:44 og ég get ekki sofnað!! Í gærnótt sofnaði ég loks um 7 leytið um morguninn eftir að hafa verið andvaka alla nóttina, fór svo á fætur um hádegi, svo þar fékk ég alveg 5 tíma svefn. Sem var nokkuð gott! Þegar ég fór uppí rúm áðan, þá var ég alveg pottþétt á því að geta sofnað strax því ég var að deyja úr þreytu. Ótrúlegt en satt þá sofnaði ég um miðnætti, og þegar ég vaknaði aftur þá var ég svo endurnærð eitthvað og hugsaði með mér YESS þarna svaf ég loks alla nóttina og þurfti ekkert að vakna til að pissa...næs, leit á klukkuna sem var bara 1.45!!! ég svaf bara í klukkutíma og 45 mínútur!!! Hvað er að gerast!! Núna 6 klukkutímum seinna er ég enn ekki farin að sofa.
Fór að lesa smá til að láta það svæfa mig, en það kannski virkar ekki nógu vel þegar þú lest draugabók eftir Yrsu, ég var farin að lesa svo hratt því ég var svo hrædd hvað var að fara gerast...var orðin alltof stressuð svo ég hætti því :)
Prófaði að setja róandi tónlist á og kreista augun á mér saman og telja rollur. Endaði með að setja á einn þátt og glápti á hann....prófaði svo aftur að liggja og rembast við að sofna....spilaði bubbles í símanum...fór reyndar líka 30 sinnum fram til að pissa og fékk 100 sinnum ælubragð uppí mig, þetta bakflæði er ekkert grín!! Það er svoleiðis að fara með mig, þrátt fyrir að poppa rennie hægri vinstri . Ohh þetta er orðið svo þreytandi, svona er þetta svefnleysi búið að vera seinustu vikurnar.
Sú litla er samt búin að vera halda mér félagsskap með sínu hnuðli og brölti, alltaf að hugsa vel um mömmu sína :)
Það heyrist í öllum fara á fætur í blokkinni, starta bílunum sínum og skafa hélið af gluggunum, á meðan ætla ég að gera eina heiðarlega tilraun í viðbót að sofna.
Góðan dag/ NÓTT

3 comments:
úúúffff ég öfunda þig ekki af svefnleysinu, það er algjört pein! Miklu skárra þegar beibí er komið út og er að halda þér vakandi því eins undarlega og það hljómar þá er allavega gott að það sé ástæða fyrir því að maður fái ekki hvíld :P
Ennthá vansvefta darling?
Ó já, líkaminn aðeins og æstur að undirbúa sig undir svefnlausar nætur í janúar!!!
Post a Comment