2.Mánaða |
Hún hefur lengi verið að velta sér á hliðina en seinustu daga hefur hún verið að setja andlitið á sér ofan í gólfið og fer alltaf aðeins lengra og lengra, og í gær var hún þvílíkt að spyrna sér og troða andlitinu meira og meira ofan í teppið en hendin hefur alltaf verið fyrir þó hún sé nú ekki stór og bjóst ég ekki við þessu alveg strax :) Og svo í dag, þá byrjaði hún á þessu aftur og var þvílíkt að vinna í þessu og allt í einu bara BLÚBBS!! og komin á magann, hendin var samt sem áður föst undir henni og henni fannst það ekki mjög gaman. Ég lagaði hana til og hún lá á maganum voða stolt að skoða heiminn, svo lagði ég hana aftur á bakið og hún var sko ekki lengi að velta sér aftur á magann!!! Þetta litla barn er sko heldur betur að flýta sér.
Hérna er hún búin að velta sér á hliðina í fyrsta sinn:) Hendin föst, snuddan föst og allt ómögulegt haha
Tilraun 2 að takast! :)
Svo er hún líka farin að uppgvöta á sér hendurnar og liggur svona með hendurnar alltaf núna og er farin að opna lófana til að grípa í hluti. Hún byrjaði á því á föstudaginn þegar hún lá á leikteppinu þvílíkt að vanda sig að reyna ná fuglinum sem hékk þar, henni tókst það reyndar ekki þar sem hann fór alltaf í burtu, en hún náði taki á hringnum aftur og aftur. Það er svo gaman að sjá hana uppgvöta nýja hluti sem hún getur gert :)
1 comment:
Halló halló litla skvís´...ætlar þú bara að labba á móti okkur á vellinum???
Og koma með í sveitina að hlaupa á eftir lömbunum?
En þú ert endalaust mikil dúlla!!!
Post a Comment