(Fyrsta almennilega pössunin, mamma og pabbi á leið á árshátíð, sumum fannst þetta afskaplega þreytandi að láta taka myndir af sér :)
Við mæðgur erum orðnar einar í kotinu, Daði fór til Rússlands á sunnudaginn og skildi okkur dömurnar eftir einar. Það er búið að ganga rosalega vel en samt skrítið að vera bara ein með hana. Þarf að plana allt rosavel núna, og bara það að komast út með ruslið er hægara sagt en gert :) En ég get ekki kvartað mikið yfir þessu yndislega barni.
Hún sofnar alltaf (nætursvefninn) um 8 - 9 á kvöldin eins og hún hefur gert dáldið lengi núna og þá hef ég tíma til að "slappa af" og þá sefur hún í svona 5 til 7 tíma, þar til hún vaknar til að drekka sem er oftast um kl 3, kl 6, kl 9 og svo vaknar hún almennilega til að fara á fætur oftast um 10 leytið til 12.
2 mánaða:
- Eftir að hafa alltaf kúkað 2-3 á dag þá fór hún að taka uppá því að kúka annan hvern dag til þriðja hvern dag og þá koma líka þessar svakalegu bombur, og þá helst þegar við eru, einhverstaðar í heimsókn! Og þá fer allt uppá bak og í eitt skiptið var sko komið uppundir hendur!!
- Hún er alltaf farin að lyfta rassinum þegar ég er að skipta á henni, þannig að þegar bleyjan er komin á og ég er að fara festa hana þá lyftir hún upp rassinum og hendir sér einhvernveginn upp og þá fer bleyjan alltaf út og suður!
- Allt í einu er orðið meira spennandi að sjúga á sér puttana og hnúana heldur en snuðið. Snuðinu er bara spítt útí horn og hnefinn settur upp í eða puttarnir og oftast eru þeir settir það langt uppí munn að hún kúgast.
- Hún er farin að slefa rosalega mikið, Þegar hún liggur á bringunni á okkur að hafa kósý þá skilur hún alltaf eftir þessu fínu polla á manni :)
- Hún er farin að grípa í hluti, oftast án hennar meðvitundar þó. En um daginn þá var Daði með andlitið alveg upp að henni og hún vandaði sig mikið að reyna grípa í nefið á honum og tókst það nokkrum sinnum. Og alltaf þegar við tökum hana upp þá fylgja með taubleyjur eða eitthvað annað sem hún er búin að ná taki á og ætlar sko ekkert að sleppa :)
- Hún er farin að halda alveg höfði þessi litla mús, hún verður eins og annað barn að sjá hana frá þessu sjónarhorni :)
- Hún varð kvefuð í fyrsta skipti eða reyndar við öll, hún fékk smá hósta og stíflað nef, þá bjargaði saltvatnið henni sko heldur betur. En það var mjög erfitt að hlusta á hana þegar hún var að vakna á nóttunni með svakalega stíflað nef. Fórum með hana til læknis á fjórða degi, við höfðum ekki áhyggjur en vildum láta kíkja á hana bara til að vera viss að allt væri með felldu útaf hóstanum, en læknirinn taldi mig bara móðursjúka "enda með fyrsta barn!!" Fannst smá spes hvernig læknirinn kom fram við okkur svona miðað við alla vírusuna sem eru í gangi, þá finnst mér bara allt í lagi að láta kíkja á hana svona litla. Þessi læknir allavega bættist í hóp þeirra lækna sem ég vil EKKI hitta á þessari heilsugæslu okkar, þó svo hún hafi nú eiginlega verið á listanum þar sem ekki er talað vel um hana þarna. Eru þeir orðnir 3 núna sem ég neita að fara til :)
Eftir að Daði fór núna á sunnudaginn (17 mars) þá hrannast upp hlutirnir sem hún er byrjuð að gera, alveg týpist enda ætlar hún helst að vera byrjuð að labba þegar hann kemur til baka eftir mánuð :)
Á leiðinni í 9 vikna skoðun :)
Við fórum í 9 vikna skoðun á mánudaginn og er hún orðin svakaleg lengja eða 59.8cm og heil 4.745 kg. Hún bræddi hjúkkuna okkar alveg í klessu þegar hún brosti bara allan tímann til hennar og hjalaði alveg á fullu, alltof krúttlegt sko!
Svo gerir hún ekki annað þessa dagana en að halda hausnum á sér uppi! Þegar hún liggur á bakinu þá er hún alltaf á fullu í magaæfingum :) Liggur oft með hausinn uppi og þegar hún er í ömmustólnum þá er hún að allan tíma halda uppi hausnum og líka þegar hún liggur á löppunum á manni þá er hausinn alltaf uppi og snertir mann ekki, þetta er eitthvað svaka sport þessa dagana, og tekur ekki mikið á fyrir hana að setjast upp þegar maður hjálpar henni upp með því að toga í hendurnar.
Líka þegar hún liggur á bakinu þá veltur hún sér alltaf á hliðina og treður andlitinu í gólfið eða sófann, veit ekki alveg hvað hún er að reyna gera :)
Og nýjasta nýtt sem hún byrjaði á í gær er að velta sér yfir á bakið þegar hún er búin að fá nóg af því að liggja á maganum.
Svona er hún alltaf núna, alltaf að lyfta hausnum upp, sama hvar hún er!
Þetta er eitthvað nýtt æði að troða andlitinu í gólfið ?? :)
Hendurnar eru sko miiiiklu betri en snuðið :)
Fegurst allra, litli krúttrass :)
Eitthvað hefur hún erft þetta frá pabba sínum að vera alltaf að fikta í eyranu á sér og beygla það :)
Á leiðinni út í göngutúr :)
No comments:
Post a Comment