Friday, March 8, 2013

UPDATE


8 vikna gömul skvísa

Jæja daman er orðin 8 vikna (í gær)! Mér finnst tíminn líða alltof hratt og lillan stækkar líka alltof hratt að mínu mati allavega :) Hef ekki verið alveg eins dugleg að blogga og ég ætlaði mér en hef þó verið dugleg að punkta niður hluti sem hún er byrjuð að gera, er bara búin að vera of upptekin að dást af fallega barninu mínu og knúsa ;) 

Hún er algjört draumabarn, lætur voða lítið fyrir sér fara. Það er komin góð rútína á daginn hennar sem byrjar svona um 10 leytið til hádegis og svo sofnar hún um 9 á kvöldin með svona 3-4 drykkjarpásum yfir nóttina/morguninn, hún er farin að vaka dáldið núna yfir daginn en tekur nokkra stutta blunda yfir daginn og þess á milli liggur hún bara á leikteppinu og spjallar við bangsavini sína og brosir og ískrar hástöfum.
Hvað er yndislegra en að vakna á morgnana, líta til hliðar í vögguna og segja góðan daginn við hana og fá svona þvílíkt bros og hjal tilbaka...LOVE IT

Hún er búin að stækka heilan helling frá því að hún fæddist og líst hjúkrunafræðingnum ótrúlega vel á hana og finnst hún líka rosalega sterk...of course ;)
Hún er farin að halda hausnum stöðugri og meira með hverjum deginum og fylgjast með öllu í kringum sig. Svona stækkar hún...:

10.jan fæðing: 3245gr – 50cm – höfuð 33cm
15.jan 5dagar: 3115gr
25.jan 15 dagar: 3700 - ? – höfuð 35,6
4.feb 25 dagar: 4010 - ? – höfuð 36
28.feb 7 vikna: 4515 – 57.7 – höfuð 37.2
En þrátt fyrir hvað hún er orðin löng þá passar hún enn vel í Newborn fötin sín og stærð 50, það verður sorgarstund þegar það þarf að setja þau föt til hliðar! Og styttist nú óþfluga í það.

Hún er enn mjög dugleg að æla yfir allt og alla og er búin að merkja sófann og stólana vel og vandlega með ælum hér og þar. Það er nú eins gott að merkja sér sitt svæði :) Hún hefur líka bombað nokkrum bombum þvert yfir herbergið og einnig á pabba sinn, í eitt skiptið hitti hún yfir á skrifborðið sem er lengst í burtu og lak þá niður og INN í skúffurnar og á allt draslið þar. Og í hvert skipti er bara brosað útað eyrum rosalega stolt af sjálfri sér.
Snuddan fer aldrei langt frá henni, hún er alveg sjúk í hana og er aldrei fjarri góðu gamni.
Svipirnir sem hún getur sett upp eru svo alltof fyndnir stundum að hálfa væri nóg.
Hún liggur við sofnar þegar við erum að klæða hana í útiföt og hún veit að hún er að fara í vagninn eða í bílstólinn, það er eitthvað mjög notalegt við þar. Keyrðum í sveitina um daginn og hún steinsvaf alla leiðina í þessa þrjá tíma og rumskaði ekki einu sinni.


Ótrúlega er þetta fljótt að gerast allt, finnst eins og ég sé búin að gleyma hvernig það var að hafa hana pínkulitla og nýfædda finnst svo langt síðan eitthvað. Og hvað þá að hafa nokkurn tímann verið ólétt, þetta er allt eitthvað svo fjarlægt núna. Veit ekki alveg, mjög skrítið eitthvað :)

Annars gengur allt með hana eins og í sögu gætum ekki átt meira draumabarn, erum  IN LOVE 

1 comment:

Birna Rún said...

Yndisleg alveg eins og við mátti búast :)