Monday, March 25, 2013

Velti Velti

2.Mánaða
Unga stúlkan velti sér yfir á magann í dag!!! jaaaaa hérna hér..ég átti ekki orð, ég varð svo spennt að ég vissi ekki hvað ég ætti að gera og hringdi strax í mömmu til að segja henni fréttirnar. Daði greyið í Rússlandi og missir af öllu.
Hún hefur lengi verið að velta sér á hliðina en seinustu daga hefur hún verið að setja andlitið á sér ofan í gólfið og fer alltaf aðeins lengra og lengra, og í gær var hún þvílíkt að spyrna sér og troða andlitinu meira og meira ofan í teppið en hendin hefur alltaf verið fyrir þó hún sé nú ekki stór og bjóst ég ekki við þessu alveg strax :) Og svo í dag, þá byrjaði hún á þessu aftur og var þvílíkt að vinna í þessu og allt í einu bara BLÚBBS!! og komin á magann, hendin var samt sem áður föst undir henni og henni fannst það ekki mjög gaman. Ég lagaði hana til og hún lá á maganum voða stolt að skoða heiminn, svo lagði ég hana aftur á bakið og hún var sko ekki lengi að velta sér aftur á magann!!! Þetta litla barn er sko heldur betur að flýta sér.
Hérna er hún búin að velta sér á hliðina í fyrsta sinn:) Hendin föst, snuddan föst og allt ómögulegt haha  
Tilraun 2 að takast! :)
Svo er hún líka farin að uppgvöta á sér hendurnar og liggur svona með hendurnar alltaf núna og er farin að opna lófana til að grípa í hluti. Hún byrjaði á því á föstudaginn þegar hún lá á leikteppinu þvílíkt að vanda sig að reyna ná fuglinum sem hékk þar, henni tókst það reyndar ekki þar sem hann fór alltaf í burtu, en hún náði taki á hringnum aftur og aftur. Það er svo gaman að sjá hana uppgvöta nýja hluti sem hún getur gert :)

Thursday, March 21, 2013

2 mánaða

(Fyrsta almennilega pössunin, mamma og pabbi á leið á árshátíð, sumum fannst þetta afskaplega þreytandi að láta taka myndir af sér :)

Daman orðin 2 mánaða! eða reyndar 10 vikna akkurat í dag, semsagt komin í tveggja stafa töluna. Hljómar ekkert smá mikið :)
Við mæðgur erum orðnar einar í kotinu, Daði fór til Rússlands á sunnudaginn og skildi okkur dömurnar eftir einar. Það er búið að ganga rosalega vel en samt skrítið að vera bara ein með hana. Þarf að plana allt rosavel núna, og bara það að komast út með ruslið er hægara sagt en gert :) En ég get ekki kvartað mikið yfir þessu yndislega barni.
Hún sofnar alltaf (nætursvefninn) um 8 - 9 á kvöldin eins og hún hefur gert dáldið lengi núna og þá hef ég tíma til að "slappa af" og þá sefur hún í svona 5 til 7 tíma, þar til hún vaknar til að drekka sem er oftast um kl 3, kl 6, kl 9 og svo vaknar hún almennilega til að fara á fætur oftast um 10 leytið til 12.

2 mánaða: 

  • Eftir að hafa alltaf kúkað 2-3 á dag þá fór hún að taka uppá því að kúka annan hvern dag til þriðja hvern dag og þá koma líka þessar svakalegu bombur, og þá helst þegar við eru, einhverstaðar í heimsókn! Og þá fer allt uppá bak og í eitt skiptið var sko komið uppundir hendur!!
  • Hún er alltaf farin að lyfta rassinum þegar ég er að skipta á henni, þannig að þegar bleyjan er komin á og ég er að fara festa hana þá lyftir hún upp rassinum og hendir sér einhvernveginn upp og þá fer bleyjan alltaf út og suður!
  • Allt í einu er orðið meira spennandi að sjúga á sér puttana og hnúana heldur en snuðið. Snuðinu er bara spítt útí horn og hnefinn settur upp í eða puttarnir og oftast eru þeir settir það langt uppí munn að hún kúgast. 
  • Hún er farin að slefa rosalega mikið, Þegar hún liggur á bringunni á okkur að hafa kósý þá skilur hún alltaf eftir þessu fínu polla á manni :)
  • Hún er farin að grípa í hluti, oftast án hennar meðvitundar þó. En um daginn þá var Daði með andlitið alveg upp að henni og hún vandaði sig mikið að reyna grípa í nefið á honum og tókst það nokkrum sinnum. Og alltaf þegar við tökum hana upp þá fylgja með taubleyjur eða eitthvað annað sem hún er búin að ná taki á og ætlar sko ekkert að sleppa :)
  • Hún er farin að halda alveg höfði þessi litla mús, hún verður eins og annað barn að sjá hana frá þessu sjónarhorni :)
  • Hún varð kvefuð í fyrsta skipti eða reyndar við öll, hún fékk smá hósta og stíflað nef, þá bjargaði saltvatnið henni sko heldur betur. En það var mjög erfitt að hlusta á hana þegar hún var að vakna á nóttunni með svakalega stíflað nef. Fórum með hana til læknis á fjórða degi, við höfðum ekki áhyggjur en vildum láta kíkja á hana bara til að vera viss að allt væri með felldu útaf hóstanum, en læknirinn taldi mig bara móðursjúka "enda með fyrsta barn!!" Fannst smá spes hvernig læknirinn kom fram við okkur svona miðað við alla vírusuna sem eru í gangi, þá finnst mér bara allt í lagi að láta kíkja á hana svona litla. Þessi læknir allavega bættist í hóp þeirra lækna sem ég vil EKKI hitta á þessari heilsugæslu okkar, þó svo hún hafi nú eiginlega verið á listanum þar sem ekki er talað vel um hana þarna. Eru þeir orðnir 3 núna sem ég neita að fara til :)
Eftir að Daði fór núna á sunnudaginn (17 mars) þá hrannast upp hlutirnir sem hún er byrjuð að gera, alveg týpist enda ætlar hún helst að vera byrjuð að labba þegar hann kemur til baka eftir mánuð :)
Á leiðinni í 9 vikna skoðun :)
Við fórum í 9 vikna skoðun á mánudaginn og er hún orðin svakaleg lengja eða 59.8cm og heil 4.745 kg. Hún bræddi hjúkkuna okkar alveg í klessu þegar hún brosti bara allan tímann til hennar og hjalaði alveg á fullu, alltof krúttlegt sko!
Svo gerir hún ekki annað þessa dagana en að halda hausnum á sér uppi! Þegar hún liggur á bakinu þá er hún alltaf á fullu í magaæfingum :) Liggur oft með hausinn uppi og þegar hún er í ömmustólnum þá er hún að allan tíma halda uppi hausnum og líka þegar hún liggur á löppunum á manni þá er hausinn alltaf uppi og snertir mann ekki, þetta er eitthvað svaka sport þessa dagana, og tekur ekki mikið á fyrir hana að setjast upp þegar maður hjálpar henni upp með því að toga í hendurnar.
Líka þegar hún liggur á bakinu þá veltur hún sér alltaf á hliðina og treður andlitinu í gólfið eða sófann, veit ekki alveg hvað hún er að reyna gera :)
Og nýjasta nýtt sem hún byrjaði á í gær er að velta sér yfir á bakið þegar hún er búin að fá nóg af því að liggja á maganum.
Svona er hún alltaf núna, alltaf að lyfta hausnum upp, sama hvar hún er!
Þetta er eitthvað nýtt æði að troða andlitinu í gólfið ?? :)
Hendurnar eru sko miiiiklu betri en snuðið  :)
Fegurst allra, litli krúttrass :)
Eitthvað hefur hún erft þetta frá pabba sínum að vera alltaf að fikta í eyranu á sér og beygla það :)
Á leiðinni út í göngutúr :)

Friday, March 8, 2013

UPDATE


8 vikna gömul skvísa

Jæja daman er orðin 8 vikna (í gær)! Mér finnst tíminn líða alltof hratt og lillan stækkar líka alltof hratt að mínu mati allavega :) Hef ekki verið alveg eins dugleg að blogga og ég ætlaði mér en hef þó verið dugleg að punkta niður hluti sem hún er byrjuð að gera, er bara búin að vera of upptekin að dást af fallega barninu mínu og knúsa ;) 

Hún er algjört draumabarn, lætur voða lítið fyrir sér fara. Það er komin góð rútína á daginn hennar sem byrjar svona um 10 leytið til hádegis og svo sofnar hún um 9 á kvöldin með svona 3-4 drykkjarpásum yfir nóttina/morguninn, hún er farin að vaka dáldið núna yfir daginn en tekur nokkra stutta blunda yfir daginn og þess á milli liggur hún bara á leikteppinu og spjallar við bangsavini sína og brosir og ískrar hástöfum.
Hvað er yndislegra en að vakna á morgnana, líta til hliðar í vögguna og segja góðan daginn við hana og fá svona þvílíkt bros og hjal tilbaka...LOVE IT

Hún er búin að stækka heilan helling frá því að hún fæddist og líst hjúkrunafræðingnum ótrúlega vel á hana og finnst hún líka rosalega sterk...of course ;)
Hún er farin að halda hausnum stöðugri og meira með hverjum deginum og fylgjast með öllu í kringum sig. Svona stækkar hún...:

10.jan fæðing: 3245gr – 50cm – höfuð 33cm
15.jan 5dagar: 3115gr
25.jan 15 dagar: 3700 - ? – höfuð 35,6
4.feb 25 dagar: 4010 - ? – höfuð 36
28.feb 7 vikna: 4515 – 57.7 – höfuð 37.2
En þrátt fyrir hvað hún er orðin löng þá passar hún enn vel í Newborn fötin sín og stærð 50, það verður sorgarstund þegar það þarf að setja þau föt til hliðar! Og styttist nú óþfluga í það.

Hún er enn mjög dugleg að æla yfir allt og alla og er búin að merkja sófann og stólana vel og vandlega með ælum hér og þar. Það er nú eins gott að merkja sér sitt svæði :) Hún hefur líka bombað nokkrum bombum þvert yfir herbergið og einnig á pabba sinn, í eitt skiptið hitti hún yfir á skrifborðið sem er lengst í burtu og lak þá niður og INN í skúffurnar og á allt draslið þar. Og í hvert skipti er bara brosað útað eyrum rosalega stolt af sjálfri sér.
Snuddan fer aldrei langt frá henni, hún er alveg sjúk í hana og er aldrei fjarri góðu gamni.
Svipirnir sem hún getur sett upp eru svo alltof fyndnir stundum að hálfa væri nóg.
Hún liggur við sofnar þegar við erum að klæða hana í útiföt og hún veit að hún er að fara í vagninn eða í bílstólinn, það er eitthvað mjög notalegt við þar. Keyrðum í sveitina um daginn og hún steinsvaf alla leiðina í þessa þrjá tíma og rumskaði ekki einu sinni.


Ótrúlega er þetta fljótt að gerast allt, finnst eins og ég sé búin að gleyma hvernig það var að hafa hana pínkulitla og nýfædda finnst svo langt síðan eitthvað. Og hvað þá að hafa nokkurn tímann verið ólétt, þetta er allt eitthvað svo fjarlægt núna. Veit ekki alveg, mjög skrítið eitthvað :)

Annars gengur allt með hana eins og í sögu gætum ekki átt meira draumabarn, erum  IN LOVE