Sit hér í sófanum nýkomin úr sturtu og ligg undir teppi með tærnar uppí loftið. Á meðan stjanar Daði við okkur prinsessurnar.
Forréttur: Lundir, sveppasósa, brúnaðar kartöflur og veit ekki alveg hvað meir:)
Eftirréttur: Karamelluísblóm og extra karmellusósa on the site
Eftireftirréttur: snakk, nammi, meira nammi og gos
mmm bíð spennt, eitthvað á ég eftir að rúlla eftir þetta.
Rokið lemur ennþá á gluggana og er ekkert að linna, sést ekki lengur út fyrir drullu og salti á gluggunum.
Fauk í vinnuna í morgun, var frekar smeik að keyra niður á höfn þar sem bíllinn hristist til og frá. Það var svaka action í allan dag niðri á höfn, landgangurinn að einu skipinu okkar fauk í sjóinn og við björgunina að ná honum úr sjónum slösuðust 2 starfsmenn hjá okkur, einn var fluttur með sjúkrabíl eftir að hann hafði dottið á bakið. En er hann óbrotinn og allt er í góðu og hinn haltraði heim. Þetta voru svaka æsifréttir og komst DV í þetta, en þeir voru smá vonsviknir þegar þeir hringdu í okkur og fréttu að enginn hefði dottið í sjóinn. Svo var hitt og þetta sem kom fjúkandi framhjá manni.
Skilaði líka inn fæðingarorlofspappírum í vinnuna í dag, áætlað fæðingarorlof hefst 2.janúar, úff svo stutt í þetta.

Annars höfum við litla mús það bara mjög gott, laumusamdrættirnir eru enn í gangi og koma þeir við minnstu hreyfingu, oftast við það bara að standa upp og er ég búin að vera fá svona pílustingi eins og það er kallað í klofið og er frekar mjög óþæginlegt. Ennþá ligg ég andvaka, sofnaði um 3-4 í nótt þó sem er fyrr en venjulega og mætti svo kl 8 í vinnuna alveg með störuna á fullu.
Það er kannski ástæðan líka fyrir því að það er verið að dekra við mann að ég get varla hreyft litlu tá hér uppí sófa.
Bumban stækkar og stækkar, brá smá þegar ég sá þessa mynd í gær finnst ég orðin svo HUGE. Það er að verða mjög óþæginlegt að sitja og vera ekki bein í baki, sérstaklega þegar hún er vakandi og sparkar uppí rifbeinin á manni. Alltaf verið að aga mann til :)
En nú er matur nomm nomm nomm
1 comment:
High five á Daða fyrir dekrið! :D
Ég er einmitt að reyna að venja mig á að leggja mig smá þessa dagana fyrst nætursvefninn er svona lélegur, maður er eins og zombie þegar maður er svona illa sofinn!
Post a Comment