Held það sé ekkert meira þreytandi en að vera andavaka, lá andvaka til ca 5 í nótt, en ætlaði sko ekki að eyðileggja daginn aftur og stillti vekjaraklukkuna kl 11 :)
Ég fékk nokkra laumusamdrætti í nótt án þess að fá neina tilfinningu um að það væri að gerast, allt í einu varð bumban bara glerhörð en mýktist svo upp aftur stuttu seinna. Og var líka að fá dáldið af stingjum mjög ofarlega á bumbunni, eitthvað sem ég hef ekki fengið áður, en það er farið núna og held ég að þetta sé svefnleysinu að kenna. Bíð spennt eftir að fara til ljósunar á mánudaginn í 32 vikna skoðun, bara til að fá að heyra að allt sé í góðu lagi.
Þyngdaraukningin mín er búin að vera mjög regluleg og fín, jæks samt! fer alltof hratt upp :)
En hún er farin að droppa aftur eftir að þessar andvökunætur mínar byrjuðu eða ég vona að það sé því að kenna, vonandi fer þessu að linna og dagurinn geti orðið eðlilegur á ný. Vildi óska að ég gæti bara lagst á koddann á kvöldin og SOFNAÐ!
Bless í bili kæra dagbók :)

No comments:
Post a Comment