Sunday, November 4, 2012

Breytingar í vændum? maybe....

Andvakan mætti á svæðið aftur ugh! Sofnaði samt frekar snemma eða um 3 leytið og vaknaði svo um hálf 8 við það að bílskúrshurðin niðri í bílageymslu var að opnast og lokast, opnast og lokast, opnast og lokast með tilheyrandi ískri og látum! Ó MÆ GOOOOD hvað ég var að verða geðveik á þessu! Lá og hlustaði á þetta þar til ég fór í vinnu hálf 9.
Þurfti líka að hitta akkurat á að keyra út þegar bílskúrshurðin var að opnast til að komast út áður en hún lokaðist strax aftur. Drasl! :)

Var að skoða fréttirnar áðan á Vísi.is og rakst á Tarot spil dagsins, hef aldrei prófað að klikka á þetta áður fyrr en núna og þetta fékk ég:

XIII - Breytingar

Samhliða spili þessu ættir þú ávallt að hafa hugfast að hugsýn þín er andlegur veruleiki, og allt það sem til er í veröld þinni var fyrst til á andlegu sviði. Fyrst kemur hugmyndin eða óskin og síðan fylgir hið þykka efni á eftir. Að baki hugsýna þinna er mikill kraftur.

Þessi kafli er á enda og nýr um það bil að hefjast. Tilefni er til fagnaðar þegar breytingarnar eiga sér stað. Umtalsverðar breytingar munu fyrr en síðar eiga sér stað. Hér eru á ferðinni breytingar til batnaðar. Brúðkaup, nýtt starf eða flutningar gætu verið svarið við spurningu þinni en mundu að breytingar geta verið erfiðar til að byrja með og aðlögunarhæfni þín gæti komið sér vel.

Þú tekur breytingunum með gleði í hjarta. Ekki verður aftur snúið þar sem þú gefur fortíðina upp á bátinn og tekur opnum örmum utan um framtíðina og tækifærin sem bíða þín.

---------
Interesting.....

Svo er bara komið að 32 vikna skoðun í fyrramálið!
Mér finnst ég alveg að fara að eiga þó það séu 2 mánuðir eftir, þar sem Ósk er sett eftir 2 daga og við erum búnar að vera fylgjast að í þessu þá líður mér eins og mín sé að koma í heiminn líka í þessari viku.  Fékk bara stress í dag að hugsa um þetta :)
Ég er sett 5.jan, en hef einhvernveginn á tilfinningunni að hún muni ekki koma fyrr 11 eða 13 jan !

No comments: