Jæja verð nú að fara poppa inn myndum hérna, loksins lít ég ekki alveg út eins og draugur enda endurnærð eftir að fá loksins almennilegan svefn og hvíld og ekki sakar að tengdó bauð dætrum sínum og tengdadætrum í dekur á Hótel Natura í Sóley spa og dekur á sunnudaginn.
Fengum líka nudd með sérstöku náttúruskrúbb kremi, mmm það var sko HEAVEN hefði sofnað ef ég hefði ekki þurft að sitja á litlum koll :) missti næstum jafnvægið einu sinni hann var svo lítill, ekki að ég sé orðin eitthvað stór sko!! Svo fórum heim til tengdó og þar stóð Jónas tengdó sveittur í eldhúsinu að elda ofan í okkur gúrme mat. Fengum mangó/kjúklingasúpu sem var æðisleg, fæ slef í muninn að hugsa um hana, svo allskonar snittur og gotterí. Frábær dagur!

En vá hvað ég átta mig ekki á því sjálf hvað ég er orðin stór fyrr en ég sé myndir af mér! Líður eins og ég sé með púða inná mér á þessum myndum. Hér er ég komin 32vikur + 3daga. Sem þýðir aðeins 53 dagar í settan dag!!! Sú litla er svo spennt að hún sparkar og sparkar í þessum töluðu orðum :)
En það eru sífleiri að segja mér að ég sé með strákabumbu!? Ætli það sé lítill tippalingur þarna inni?? Ekki að það skipti okkur nokkru máli svo lengi sem við fáum heilbrigt barn í hendurnar þá munum svífa á bleiku skýji af gleði. En maður er bara búinn að tengjast bumbubúanum sem stelpu, svo það væri nú eitthvað ef maður heyrði svo orðin "Til hamingju, þetta er strákur!!" á fæðingarstofunni :/
No comments:
Post a Comment