Fyrsti snjórinn mætti uppí Esju í gær ásamt hávaða roki og bandbrjáluðum bil, Halló vetur!!
Við bumba sitjum hér í kósýheitunum að hlusta á nýja "the xx" diskinn, og hljómar hann mjög vel í eyrum okkar beggja, svona miðað við spörkin allavega. Nema hún sé að mótmæla :) Pabbinn fór að keppa í íshokkí svo við ætlum að dúlla okkur við að skoða og setja inn myndir frá kósý helginni sem við áttum uppí sveit. Fórum í laxveiði, réttir og týndum allavega 15 lítra af berjum. Komum sko heim með björg í bú:)
Daði, bróðir Daða og pabbi þeirra og lúlli vinur þeirra áttu helgarhollið í ánni alla helgina. Ég ákvað að sýna þeim hvernig ætti að fara að því að veiða lax og var ekki fyrr búin að setja öngulinn ofan í ánna þegar laxinn beit á!...hahaha ahh það var algjör snilld að ná fyrsta laxinum ;)
Amma þarna á kafi inní runna að ná bestu berjunum :)
Marinó var að moka skít og ekki veitti af að smúla hann frá toppi til táar eftir það
Kveðja, VIÐ
4 comments:
gaman að sjá svona myndir :) sæta búbulínu mynd :) ég var að reyna að ná í þig í dag....prufa aftur á morgun
Greinilega æðisleg helgi :) Meira svona myndablogg! :D
Í dag hefurðu ekki afsökun Lára, þú ert í fríi og ÉG VEIT ÞAÐ! Heimavinna dagsins er að skrifa nokkrar línur! ...og auðvitað heimsækja mig líka :D
DONE AND DONE !!:)
Post a Comment