Saturday, January 5, 2013

5.Janúar


5.Janúar er runninn upp og ekkkkkkert er að gerast! Vonuðumst nú til að hún léti sjá sig í dag miðað við lætin í henni í gær. Náðum ogguponsu videoi af látunum þegar maginn gekk um í sveiflum, en auðvitað hættir hún alltaf leið og myndavélin kemur á staðinn.

HÉRNA er smá video af iðandi bumbunni.

Svo héldum við líka að hún myndi alveg pottþétt koma í gærkvöldi eða nótt, því við ákváðum að fara í bumbumyndatöku hjá Helenu í dag og það hefði verið svo týpist að ná því ekki. En það var gaman að geta farið í myndatöku á settum degi og hlakka ég til að sjá myndirnar á morgun :)
Við vorum svo á fullu að stússast í dag með það líka í huga að reyna koma einhverju af stað. Þurftum að fara í Ikea og löbbuðum í gegnum allt og húff hvað það var erfitt. Samdrættir og stingir voru alveg á fullu og þrýstingur niður eins og ég veit ekki hvað, eeeeen það hætti um leið og við fórum útúr Ikea. Ég fann líka hvað maður er í eeengu formi lengur eftir 2 mánaða legu þar sem ég fékk hlaupasting að labba í Ikea á skjaldbökuhraða. Og núna sit ég uppgefin uppí sófa eftir erfiði dagsins haha :)

En ef ekkert er búið að gerast fyrir mánudag, þá förum við í belglosun á mánudagsmorgun hjá ljósunni til að reyna ýta okkur af stað. En við höfum einn dag í viðbót áður en það þarf að gerast.
Nenniggi meir Bless...
löppin að troða sér þarna í gærkvöldi...

Verð líka að setja inn alltof krúttlegar myndir af henni Lárey litlu, efri myndin er þegar hún er spurð "hvað ertu sterk??"
Verðandi foreldrar á áramótunum :)


3 comments:

kolla said...

jjjiiiii spennandi :) ,.....by the way er búin að vera að reyna að ná í þig seinustu daga...

Birna Rún said...

Það má alveg segja það að þetta sé iðandi bumba. Alveg brjáluð litla stelpan.

Ósk said...

váá :D
uss hvað ég hlakka til að hitta hana! :)