40vikur eða 10 mánuðir!!! Meðgangan er sko engir 9 mánuðir það er einn leynimánuður í viðbót sem enginn talar um greinilega...já flókið :)
16v - 20v - 24v - 28v - 32v - 36v - 40v
Þetta er bara seinasta svona myndin sem ég mun púsla saman. Frekar skrítið að hugsa útí það að það sé bara komið að þessu. Þetta tímabil var svo endalaust langt en núna þegar hver dagur fer að verða seinastur þá er eins og óléttutíminn hafi flogið í burtu frá manni. Ég er ekki frá því að ég sé strax komin með smá bumbusakn þó ég geti ekki beðið eftir að hún fari og fæ litla stelpu í heiminn í staðinn.
40v/2d í dag og allt er voða rólegt, fórum í tíma til ljósunnar í morgun og hún hreyfði aðeins við belgnum til að reyna koma einhverju af stað, veit ekki hvort það hafi eitthvað virkað. Ekki var það þægileg reynsla en ég voooona að eitthvað fari að gerast bráðlega....getiggi beðið lengur!!
2 comments:
Jæja skvísa ég er inn á síðuni þinni dagleg .... hvar eru myndinarn :)
Hvar er aðalmanneskjan sem við erum búin að bíða eftir SVO lengi...engar myndir hmmmm... ;)
Post a Comment