Þessi litli krúttbangsi er orðin 16 daga gömul í dag! Vá hvað þetta líður hratt. Hún er heldur betur búin að stækka og breytast á þessum stutta tíma frá því við komum heim af spítalanum. Komin með smá undirhöku, búin að fylla smá í kinnarnar og orðin pattaraleg:)
Þegar hún fæddist var hún 3245gr, í 5 daga skoðun var hún 3115gr.
Í gær kom hjúkrunarfræðingur heim til að skoða hana og vigta, og á 10 dögum er hún búin að þyngjast um rúmlega 600 grömm!!! hún var semsagt 3700gr. Það er sko heldur betur gott mjólkubú framan á mömmunni, talað er um að meðalþyngdaraukning er 150gr á viku. Hún nennir sko ekkert að vera lítil og nett lengur, ætlar bara að vera stór og sterk.
Svona getur hún verið heillengi, haldandi hausnum og bræða okkur með stóru augunum sínum
2. VIKNA gömul
- Tók snuð á öðrum degi
- Missti naflastrengsstubbinn á fjórða degi
- Drekkur á ca 3 tíma fresti og sefur þess á milli, fyrir utan tímana þegar hún bara liggur og horfir útí loftið og spáir í heiminum
- Hún drekkur í kringum miðnætti og þá er komin háttartími, vaknar svo um 3 til að drekka, aftur um 6-7 og svo aftur um 10 leytið og þá er farið fram í stofu í kósýtíma með pabba, kveikt á ljósum og sjónvarpi og þá er komin dagur og yfirleitt fær mamman að sofa þá ogguponsu lengur, þetta er rútína sem er búin að vera síðan á degi 2 eftir að snuðið fékk grænt ljós..very næs og svona heldur þetta áfram yfir daginn.
- Það tekur hana svona 10 mín að drekka í hvert sinn
- Sefur alltaf í vöggunni sinni nema þegar foreldrarnir bara verða aðeins að knúsa og kjassa
- Finnst best að sofa á hliðinni og þá með hendurnar fyrir ofan haus eða ofan á hausnum
- Getur legið heillengi róleg og horft á hello kitty í vöggunni þegar hún nennir ekki alveg strax að fara að sofa
- Finnst rosa gott að liggja í kuðung :)
- Ælir næstum eftir hverja gjöf
- Er stundum dáldið æst að drekka og svolgrar mjólkinni í sig á methraða með meðfylgjandi andköfum en þá kemur líka hressilegt og oft dáldið gauralegt rop strax á eftir
- Gefur frá sér pirringshljóð ef hún nær ekki að ropa strax eftir gjöf og þá kemur stundum smá grátur með
- Finnst rosalega gott að koma sér vel fyrir á búbbunni eftir að hafa drukkið og fá sér smá kríu og stundum lyftir hún upp hausnum til að koma sér aðeins betur fyrir. Og best er að halda líka utan um búbbuna með handleggnum
- Finnst ótrúlega notalegt að liggja á bringunni á pabba sínum og sofa þar í smá dekri og þá er líka ofsa gott að toga smá í bringuhárin svona til að ná góðu taki svona ef reynt væri að færa mann í vögguna. Og enn betra er ef maður fær smá hristing í leiðinni
- Finnst rosa róandi að hlusta á suðið í gíraffa bangsanum sínum (white noise)
- Er ekkert smá dugleg að lyfta hausnum og halda honum í dáldinn tíma meðan hún skoðar hvað er fyrir framan sig
- Finnst mjög notalegt að fara í bað
- Er enn með smá gröft í augunum en það er á góðri leið að fara, og þá bara strokið í burtu með volgu vatni og bómul
- Elskar snuðið sitt og er mjög dugleg að passa uppá það og halda í það svo það detti ekki úr munninum
- Hún er með svo rosalega sogþörf að stundum þegar hún missir snuðið nær hún að sjúga það upp aftur þegar hún liggur í rúminu :) Ef það tekst ekki þá heyrist svona ohhh hljóð í henni einhvernveginn til að láta okkur vita að snuddan er farin á flakk og vantar hjálp til að ná henni tilbaka
- Er farin að sparka af sér sænginni
- Verður betri og betri með hverjum deginum að ná völdum á augunum þó hún verði ennþá stundum dáldið rangeygð.
- Finnst rosa gott að láta nudda tásurnar sínar
- Fær ennþá Moro reflex í miðjum svefni, og oft þegar verið er að skipta á henni og setja í bað en það lagast allt leið og maður leggur hendina á bringuna
Ljúfa lífið :)
Hárið dáldið úfið eftir baðið
Hér er sko best að kúra
Gott að slappa af og horfa á american idol :)
Stundum dáldið erfitt að ná stjórn á þessum augum
Fröken kúrudýr
Mamman á fyrstu 2 vikunum
- Þar sem sogþörfin var svo rosaleg á litlu dömunni náði hún að sjúga nipplurnar næstum af mér, og saug hún það fast að það fór að blæða, og þá var sko ÓGEÐSLEGA vont að láta hana á brjóst, líka því hún var að taka búbbuna dáldið vitlaust fyrstu 2 dagana.
- Fengum grænt ljós á snuð á degi 2 og þá fengu nipplurnar hvíld á endalausu sogi og fóru að lagast
- Þurfti samt að halda í mér andanum fyrstu sekúnturnar þegar hún var sett á brjóst það var svo ógeðslega vont, en með hjálp snuðsins og lansinoh kremsins fóru nipplurnar að lagast og á degi 6-7 var allt orðið gott aftur
- Á degi 3 komu stálmarnir og breyttist ég í Dolly Parton, og var erfitt að sofa þar sem ég hélt ég myndi bara springa. Sem betur fer tók þetta bara um 24 tíma og þá voru búbburnar orðnar betri :) og mjólkurstarfsemin hafin
- Fyrstu vikuna var ég að DEYJA í rófubeininu, átti erfitt með að labba, sitja, hósta, hnerra og stundum hlægja og gekk um eins og bækluð mörgæs. Ljósan ákvað að hringja og panta tíma hjá sjúkraþjálfa sem skoðaði á mér rófubeinið og kom þá í ljós að það hafði beyglast aftur í fæðingunni og þess vegna var ég búin að vera drepast í beininu.
- Mest pirrandi var að heyra frá sjúkraþjálfanum að oftast væri hún kölluð til beint eftir fæðingu til að laga rófubeinin á stelpunum ef það hefði skekkst. Ég var strax farin að kvarta yfir þessu 5 mínútum eftir fæðingu en engri ljósunni niðrá spítala grunaði neitt svo ég þurfti að þjást í viku áður en eitthvað var gert.
- Hún nuddaði beinið smá til og frá og þá var allt strax betra.
- Tók þó smá tíma að lagast en í dag er þetta farið.
- Það tók smá tíma fyrir sauminn að lagast, þar sem einn saumurinn datt úr á fyrsta degi og var það að bögga mig í langan tíma en það er allt búið að lagast í dag.
- Er búin að fara út nokkrum sinnum í göngutúra og fá mér ferskt loft þó það sé ekki nema í 15 mín.
- Jelly Belly jább :)
- Grindin er farin að segja til sín núna EFTIR fæðinguna, great og er ég að reyna passa mig að krossleggja ekki lappirnar. En það er bara svooo erfitt að muna það!
3 comments:
Hún er algjör dúllurass þessi litli sprellari ;)
Viktoríu svelgdist á held ég í hvert skipti sem hún drakk og gerir ennþá ;)
Gott að allt gangi réttu leiðina með ykkur skvísur!
En rosa gaman hvað þú ert dugleg að skrifa og setja inn myndir ;)
Hlakka til að knúsa ykkur
Jæja núna er daman orðin mánaðar gömul og + nokkrir dagar.... :) á ekkert að fara að upfæra bloggið :)
P.S ég var að reyna að bjalla á þig um daginn á viber.
Bjallaðu þegar þú hefur tíma
Soo.... how about an update? I wanna hear about your little princess! Knus
Post a Comment