Klukkan er 6, ég get ekki sofið, sofnaði um hálf 2 og vaknaði um 3. Tveggja tíma svefn jey, jinxaði heldur betur í gær þegar ég bar út boðskapinn og fagnaði því að geta sofið loksins. Þessa vikuna hef ég náð að sofa allar næturnar og fyrir vikið verið hressari og fundið minna fyrir bjúg í útlimunum! En núna finn ég bjúginn blómstra í puttunum, er farin að ýta á tvo stafi í einu á símanum í stað eins, nei djók!! en samt eiginlega ekki. Erum að fara í útskriftarveislu í hádeginu, ég verð sko ferska gellan á svæðinu sem rúllar inn.
Það er líka orðið svo erfitt að sofa því ég vakna við andarteppu ef ég leggst óvart á bakið, ó hve ég sakna þess að geta legið á bakinu og maganum!! Það er erfitt að snúa sér frá annarri hlið yfir á hina! Sérstaklega líka þegar lilla er að troða löppinni á sér út á milli rifbeinanna og vill ekki færa sig:) Hvar væri ég án snúningslaksins!! Það er líka alltof heitt, er búin að opna allt til að fá gegnum trekk og kulda, greyið Daði honum líður eins og hann sé að sofa uppá Vatnajökli, meðan ég er í hitabylgju í Afríku! Jæja ætla spila einn jewels leik og svo reyna í 100 skipti að sofna! Góðan dag/nótt kveðja kvartarinn:)
1 comment:
ohh Lára það er svo endalaust gott að geta sofið á bakinu! Og maganum! (ef brjóstin eru ekki að springa þ.e.) Og að vippa sér frá einni hlið yfir á aðra!
Góðu fréttirnar eru að það er öörstutt í það fyrir þig og slæmu fréttirnar að það verður töluvert minni tími til að njóta þess, en gott verður það :)
Post a Comment