Loksins rann upp dagurinn sem við erum búin að bíða eftir í marga mánuði, að komast í 36 vikna vaxtasónarinn og sjá litlu snúlluna okkur. Ég var gegnsæ af þreytu eftir aðeins 2 tíma svefn frá því daginn áður og loksins þegar ég fæ að fara út úr húsi þá var ógeðslegt veður úti, rok, rigning og þvílíkt þungbúið.
Mættum niðrá spítala ljósan spjallaði smá við okkur og svo beint í sónar. Það fór ekki á milli mála að það væri lítil stelpa á leiðinni, allt leit rosa flott út, hjartsláttur, blóðflæði, naflastrengurinn, beinabygging og fleira sem við vissum ekki alveg hvað hún var að skoða og bara allt saman. Ljósan fór í gegnum allt alveg kyrfilega vel enda vorum við í sónarnum í allavega í 40 mín, og þurfti ég regluglega að leggjast á hliðarnar þar sem það er orðið mjög erfitt að liggja á bakinu til lengdar, var orðin andstutt þar sem litla er farin að þrýsta á allt saman.
Litla var mjöööög dugleg að sparka og var ljósan farin að tala við hana í gegnum skjáinn og biðja hana um að vera ekki að hreyfa sig svona mikið, hún er líka algjör orkubolti og mætti alveg róa sig smá suma daga eða allavega láta rifbeinin mín vera :)
Fengum svo líka smá þrívíddarsónar á andlitið hennar, það fyrsta sem ég sá voru bollukinnarnar en það fyrsta sem ljósan sá voru varirnar hennar, hún var bara "Jiii eru þið að sjá þessar kossavarir!! jiii hahah þetta er ekkert smá...eru þið að sjá þetta?? Jii hvað hún á eftir að vera sæt með þessar kossavarir" Og svo gaf hún okkur myndir til að eiga af flottu kossavörunum.
Það tók samt sinn tíma að fá almennilega að sjá andlitið þar sem hún var alveg límd uppvið legið og var heldur búin að koma sér vel fyrir í notalegri stellingu, krosslagði lappirnar og fékk sé smá lúr.
Eina sem var athugavert er að hún er frekar lítil. Ljósan spurði mig líka hvort ég væri búin að þyngjast lítið þegar ég labbaði inn, þar sem ég væri svo nett en svo er EKKI þar sem ég er búin að þyngjast um 12 kg!! Svo það er allt eðlilegt.
Hún er 2490gr eða 10 merkur sem er frekar lítið en allt í lagi og þarf að athuga í næstu viku hvort ég þurfi að fara aftur í vaxtarsónar til að fylgjast með hvort hún sé ekki pottþétt að stækka. Ég er by the way komin 35v + 4 daga.
Og ef hún er ekki nógu dugleg að stækka þá þarf í framhaldi að því að íhuga gangsetningu og jafnvel áhættumeðgöngu sem þýðir þó bara að koma í fleiri skoðanir til að fylgjast með, en það þarf alls ekkert að vera og ekkert til að hafa áhyggjur af þar sem hún er alveg tilbúin að koma í heiminn og allt lítur rosalega vel út. Hún er bara nett og sæt :) Hún er skorðuð og liggur í bestu stöðu og mun örugglega koma í heiminn með stút á vörum eins og Ásdís Rán miðað við lýsingarnar hjá ljósunni :)
Svo við komum bara alglöð og sæl úr þessari skoðun í dag og getum ekki beðið að fá að knúsa lilluna okkar;)

1 comment:
hahaha...svo gaman af sónarmyndum madur sér allt møgulegt ;) út úr teim...
Hlakka til sjá litla dúllurassinn ;)
Post a Comment