Ahh lífið er ljúft þessa dagana, sitjum hér á sundlaugarbakkanum í 35 stiga hita og lovinit, erum umkringd íkornum, eðlum, fiðrildum og SNÁK!! Allt í einu kom bara hoppandi snákur útúr runnanum og át eina eðlu sem sat í sínum rólegheitum við hliðina á okkur. Það var frekar krípí atriði, sólstólarnir voru dregnir dáldið langt í burtu frá runnunum eftir þetta :) Þrátt fyrir hitann er byrjað að vera dáldið "kalt" eða svo segja ameríkanarnir! silly people! það er sko ekki kalt!! Ætla að skella inn nokkrum myndum, vonandi kemur eitthvað inn þar sem netið hér er á sniglahraða!


Hvalurinn í sólbaði!
Kíktum á djammlífið í Universal City Walk, okkur langaði þvílíkt að fara á Halloween Horror Night í Universal, en ákváðum að við viljum hafa bumbubúann inní mér þangað til í Janúar. Var dáldið smeik við allt bregðudótið :)
29 vikna bumba :)
Daði glaði í HJÚMONGUS veiðibúðinni!
Daði gekk um og rústaði búðinni :) Stóð þarna heillengi að reyna láta stólinn hætta að detta niður, hillan var hallandi niður og rann alltaf aftur niður á gólf þegar hann var að reyna laga, æjæj had to be there moment :)
Outletið!!
Heitur dagur á sundlaugarbakkanum
Tanmonster þarna bakvið Daða
Þessi barnabúð var HUGE!! Tekur örugglega viku að ná að skoða allt :)
1 comment:
Oh wow! My economy is happy that I've never visited a baby store like that! :)
Post a Comment