Sit hér útí bíl í mjóddinni að bíða eftir að Daði komi með rútunni úr vinnunni. Erum að fara á fyrsta fæðingarnámskeiðið af þremur! Er smá stressuð fyrir þessu námskeiði veit ekki alveg afhverju, finnst eins og ég sé ekki búin að undibúa mig nógu vel og verði spurð kannski hvort ég sé ekki búin að gera þetta og hitt til að undirbúa mig og ég bara uu nei! Og fái skammir tilbaka:( hehe
Ég er samt með 2 bækur heima af bókasafninu um barneignir og fleira, er kannski ekki búin að fletta alveg nóg af blaðsíðum í henni:/ Suma daga einfaldlega er ég ekki alveg að fatta hvað er stutt í þetta!! jæja púst púst inn ég fer!
Ég er samt með 2 bækur heima af bókasafninu um barneignir og fleira, er kannski ekki búin að fletta alveg nóg af blaðsíðum í henni:/ Suma daga einfaldlega er ég ekki alveg að fatta hvað er stutt í þetta!! jæja púst púst inn ég fer!
3 comments:
Þú ert vel undirbúin held ég, en svo ertu auðvitað að fara á námskeiðið til að fá undirbúning líka!
Þú ert líka ekki komin það langt að þetta sé orðið vandræðalegt, mér fannst pínu vandræðalegt að svara þegar ég var á námskeiðinu spurð hve langt ég væri komin... "39 vikur!" :$
Var ekki allt brjálad Lára? ;) Ég hló med sjálfri mér tví svona áhyggjur eru eru pottthétt óléttukonudæmi ad madur sé eitthvad gagnryndur fyrir ad kunna ekki ad eignast krakka hahah thid erud svo mikil krútt bádar tvær.
haha þetta voru aðeins of miklar áhyggjur hjá mér :) Það var nákvæmlega EKKERT pælt í því hvað hversu mikið hver og einn væri reddý. Það var samt einn strákur þarna alveg whipped af kærustu sinni, hann átti að glósa allt niður og hún var alltaf að segja honum. MUNDU ÞETTA!! greyið strákurinn!!
Það var samt ekkert til að glósa, hálf innihaldslaus tími.
Post a Comment