Monday, January 7, 2013

40vikur eða 10 mánuðir!!! Meðgangan er sko engir 9 mánuðir það er einn leynimánuður í viðbót sem enginn talar um greinilega...já flókið :)


16v - 20v - 24v - 28v - 32v - 36v - 40v
Þetta er bara seinasta svona myndin sem ég mun púsla saman. Frekar skrítið að hugsa útí það að það sé bara komið að þessu. Þetta tímabil var svo endalaust langt en núna þegar hver dagur fer að verða seinastur þá er eins og óléttutíminn hafi flogið í burtu frá manni. Ég er ekki frá því að ég sé strax komin með smá bumbusakn þó ég geti ekki beðið eftir að hún fari og fæ litla stelpu í heiminn í staðinn. 
40v/2d í dag og allt er voða rólegt, fórum í tíma til ljósunnar í morgun og hún hreyfði aðeins við belgnum til að reyna koma einhverju af stað, veit ekki hvort það hafi eitthvað virkað. Ekki var það þægileg reynsla en ég voooona að eitthvað fari að gerast bráðlega....getiggi beðið lengur!!

Saturday, January 5, 2013

5.Janúar


5.Janúar er runninn upp og ekkkkkkert er að gerast! Vonuðumst nú til að hún léti sjá sig í dag miðað við lætin í henni í gær. Náðum ogguponsu videoi af látunum þegar maginn gekk um í sveiflum, en auðvitað hættir hún alltaf leið og myndavélin kemur á staðinn.

HÉRNA er smá video af iðandi bumbunni.

Svo héldum við líka að hún myndi alveg pottþétt koma í gærkvöldi eða nótt, því við ákváðum að fara í bumbumyndatöku hjá Helenu í dag og það hefði verið svo týpist að ná því ekki. En það var gaman að geta farið í myndatöku á settum degi og hlakka ég til að sjá myndirnar á morgun :)
Við vorum svo á fullu að stússast í dag með það líka í huga að reyna koma einhverju af stað. Þurftum að fara í Ikea og löbbuðum í gegnum allt og húff hvað það var erfitt. Samdrættir og stingir voru alveg á fullu og þrýstingur niður eins og ég veit ekki hvað, eeeeen það hætti um leið og við fórum útúr Ikea. Ég fann líka hvað maður er í eeengu formi lengur eftir 2 mánaða legu þar sem ég fékk hlaupasting að labba í Ikea á skjaldbökuhraða. Og núna sit ég uppgefin uppí sófa eftir erfiði dagsins haha :)

En ef ekkert er búið að gerast fyrir mánudag, þá förum við í belglosun á mánudagsmorgun hjá ljósunni til að reyna ýta okkur af stað. En við höfum einn dag í viðbót áður en það þarf að gerast.
Nenniggi meir Bless...
löppin að troða sér þarna í gærkvöldi...

Verð líka að setja inn alltof krúttlegar myndir af henni Lárey litlu, efri myndin er þegar hún er spurð "hvað ertu sterk??"
Verðandi foreldrar á áramótunum :)


Friday, January 4, 2013

!!

1 dagur í baby!!! svona tæknilega séð þar sem það er komið fram yfir miðnætti. Og hún er ekkert að gera sig líklega til að koma! Enda kannski ekki skrítið, við alltaf búin að banna henni að koma þar til 2013 væri komið að núna þorir hún ekki lengur að reyna að troða sér út eins og hún var byrjuð á:) Ætlum út á morgun í fyrsta göngutúrinn eftir rúmlega tvo mánuði í legu!! Hoppa smá kannski líka:)

Monday, December 31, 2012

24 Tímar!

jæja það eru 24 tímar í 2013!! Ætli við náum:) Það er farið að braka og bresta í mjaðmagrindinni og er orðin svo aum grindinni að það tekur á að ganga, komst varla í skónna mína áðan það var svo óþægilegt að lyfta upp löppinni..daddadammm! nú hlýtur þetta að fara bresta á hvað á hverju!! Finn bara hvað líkaminn er að undirbúa sig! Hef samt ekki fengið neina verki nema óþæginlega túrverki, en finn hinsvegar vel til þegar lilla er að troða sér neðar og spyrna sér í..sjáum hvað setur:) Komin 39 vikur og 1dag:)

Monday, December 24, 2012

GLEÐILEG JÓL

20 vikur - 38 vikur
Sitjum hér í kósýheitum að horfa á the Grinch, og skoða í gegnum bumbumyndir. Það er svo gaman að skoða yfir allar myndirnar og sjá muninn á hverri viku sem leið. Og hugsa að á 20 viku fannst mér bara skrítið að fólk sá ekkert á mér þegar ég fann alveg mun á mér. Og þegar ég horfi sjálf á myndina núna þá skil ég alveg að ENGINN hafi séð neitt á manni hehe. Fyndið líka að sjá mann þrútna út svona á seinustu vikunum og maður verður þreytulegri og þreytulegri í hverri myndatökunni. 
Nú eru aðeins 12 dagar í settann dag og 8 Dagar í áramót. Nú fer þetta bara að gerast hvað á hverju og finnst mér það svo ótrúlegt. Hvert flaug tíminn??
Ég á ekkert til að vera í á jólunum :( búin að fara í gegnum allan fataskápinn og ekkert passar æjæj lúxusvandamál það. Verð líka að vera í einhverju teygjanlegu þar sem maður verður víst fjórfaldur af bjúg við það að borða hamborgarhrygg en ég ætla samt ekki að láta það stoppa mig. Verð bara bangsaleg og fín :)
En GLEÐILEG JÓL frá okkur jólakúlu ;)

Saturday, December 22, 2012

kvart.is

Klukkan er 6, ég get ekki sofið, sofnaði um hálf 2 og vaknaði um 3. Tveggja tíma svefn jey, jinxaði heldur betur í gær þegar ég bar út boðskapinn og fagnaði því að geta sofið loksins. Þessa vikuna hef ég náð að sofa allar næturnar og fyrir vikið verið hressari og fundið minna fyrir bjúg í útlimunum! En núna finn ég bjúginn blómstra í puttunum, er farin að ýta á tvo stafi í einu á símanum í stað eins, nei djók!! en samt eiginlega ekki. Erum að fara í útskriftarveislu í hádeginu, ég verð sko ferska gellan á svæðinu sem rúllar inn.

Það er líka orðið svo erfitt að sofa því ég vakna við andarteppu ef ég leggst óvart á bakið, ó hve ég sakna þess að geta legið á bakinu og maganum!! Það er erfitt að snúa sér frá annarri hlið yfir á hina! Sérstaklega líka þegar lilla er að troða löppinni á sér út á milli rifbeinanna og vill ekki færa sig:) Hvar væri ég án snúningslaksins!! Það er líka alltof heitt, er búin að opna allt til að fá gegnum trekk og kulda, greyið Daði honum líður eins og hann sé að sofa uppá Vatnajökli, meðan ég er í hitabylgju í Afríku! Jæja ætla spila einn jewels leik og svo reyna í 100 skipti að sofna! Góðan dag/nótt kveðja kvartarinn:)

Tuesday, December 18, 2012

Vaxtarsónar

Lilla 37 vikna og 3 daga :) (close up af andlitinu hennar á hlið, svona fyrir ykkur sem sjáið bara landslag eða ísjaka:)

Fórum í vaxtasónar í dag til að sjá hvort hún væri ekki dugleg að stækka og jújú auðvitað er hún að stækka hún er búin að þyngjast um 300 gr á 2 vikum og það er víst bara mjög gott eða svo sagði ljósan. Hún er orðin 2800gr og allt lítur vel út. Svo þá get ég haldið áfram að halda henni inni þar til eftir áramóta ;)
Það var ný kona sem fór með okkur í sónar og hún gerði líka athugasemd á kyssuvarirnar hennar, að hún væri með þennan svaka stút á vörunum.
Því oftar sem við fáum að sjá hana því meira langar okkur að fara fá hana í hendurnar!! Og vá hvað okkur hlakkar til að sjá hana í persónu og fá að sjá þessar kyssuvarir hennar sem allir eru að tala um :)

Lilla var líka að gera mömmu sinni grikk í nótt, ég var alltaf að vakna við samdrætti og svakaleg spörk. Og í eitt skipti hrökk ég upp og þá hélt ég að ég væri bara að fara af stað og leið ekkert smá skringilega í líkamanum og hjartað í mér var líka á þúsund þar sem mér brá svo og var farin að ýminda mér að allir stingir og verkir væru eitthvað sem væri að gefa merki að ég væri að fara af stað. Átti erfitt með að sofna aftur því ég var svo viss um að eitthvað væri að fara gerast. En svo sagði ég sjálfri mér að það ætti ekki að fara á milli mála þegar eitthvað fer að gerast, ég ætti ekki að þurfa að hugsa mig um hvort eitthvað væri að gerast....sofnaði stuttu eftir það :)
Kannski var ég líka að hugsa þetta allt því að í gærkvöldi var ég farin að fá mjög reglulega samdrætti þar sem ég lá í afslöppun í Lazy Boy, en svo róaðist það allt niður...en fékk samt smá panik við það og þessvegna hef ég sofið svona illa og kannski var líka smá stress yfir vaxtarsónarnum í gangi. En ljósan sagði að þetta væri bara allllllllt ósköp eðlilegt. Líkaminn bara að undirbúa sig, enda BARA 18 DAGAR EFTIR!!!
En ég ætti nú að fara sofa betur eftir að vita að allt sé rosa flott hjá lillu og þurfum ekkert að hafa áhyggjur að hún sé ekki að stækka rétt.