Friday, January 18, 2013

Viku gömul prinsessa

Fæðingarferlið hófst 9.janúar, réttara sagt í hádeginu kl 12.30. Þá byrjaði vatnið að dropa niður, var samt ekki alveg viss fyrst, sá alltaf fyrir mér að þegar maður missti vatnið þá bókstaflega myndi það fara eins og í bíómyndunum. Aldrei voru verkir eða neitt meðfylgjandi bara þessir venjulegu samdrættir svo ég var ekki alveg viss hvort eitthvað væri að fara bresta á. Þegar Daði kom heim úr vinnunni um 17.00 leytið þá ákváðum við að hringja niður í Hreiður bara til að sjá hvað þær myndu segja yfir þessu. Þær vildu fá mig niðureftir í skoðun svo við settum spítalatöskuna og bílstólinn í bílinn svona til vonar og vara ef við kæmum ekkert heim aftur.
Þegar við mættum niðrá spítala kl 18.00 þá mættum við Rakel ljósmóðurinni okkar hlaupandi upp stigana til að hitta okkur, við höfðum hringt í hana á leiðinni niðureftir og ætlaði hún að hitta okkur þar. Við fórum með henni inná herbergi þar sem hún skoðaði mig. Hún prófaði að ýta á magann á mér og þá fossaði út allt vatnið, mjög skrítin tilfinning :) Svo tjekkaði hún á útvíkkuninni og var ég komin með 6 í útvíkkun!!
Það voru ánægjulegar fréttar að vera komin í 6 í útvíkkun grunlaus og verkjalaus!
Svo setti hún mig í monitor til að tjekka á hjartslættinum á lillu sem var mjög flottur, og sátum við þarna í rúman klukkutíma í tjekki. Eftir það kom önnur ljósa inn sem var sérhæfð í nálastungum og smellti þeim á mig í von um að hríðarnar færu nú af stað. 3 í eyrað, 1 í ennið og svo í sitthvoran innanverðan ökklann. Og þar sátum við í annan klukkutíma. Eftir það spurði hún hvort við vildum ekki bara fara heim og slaka á þar og sjá hvað myndi gerast og ættum við svo að koma aftur kl 8 um morguninn daginn eftir og þyrftum þá að fara í gangsetningu því þá væri kominn hámarkstími frá þeim tíma sem ég byrjaði að missa vatnið. Eða fá að vera á hreiðrinu yfir nóttina þar sem það var mjög lítið að gera hjá þeim. Þar sem Daði var ekki tilbúinn að taka á móti dóttur sinni í bílnum þá ákváðum við að gista bara niðrá spítala, þorðum ekki heim ef eitthvað færi nú af stað og við myndum ekki fatta að allt væri að gerast (right!!)

Kl 20.00 vorum við komin inná herbergi og átti ég að leggja mig og Rakel ljósa ákvað að fara bara heim þar sem ekkert var að gerast og ætlaði svo að koma aftur morguninn eftir jafnvel fyrr ef eitthvað færi af stað sem við höfðum ekki mikla trú á.
Nákvæmlega 28 mínútum seinna byrjuðu hríðar eins og smellt væri fingri, það var eins og lilla hefði sparkað þeim af stað svo það varð ekkert úr því að sofna og safna orku. Hríðarnar voru mjög vægar í byrjun svo við vorum ekkert mikið að kippa okkur upp við þetta, því þetta voru bara smá túrverkir en svo jókst þetta og jókst með meðfylgjandi uppköstum. Við létum ljósurnar frammi vita að hríðarnar væri líklegast byrjaðar og þá kölluðu þær Rakel til aftur sem var nýkomin heim :)

Klukkutíma seinna(21.30) þá voru hríðarnar byrjaðar að vera frekar sársaukafullar svo við kölluðum aftur á ljósuna og um klukkan 22.00 þá færðum við okkur inná fæðingarstofuna þar sem baðið var og ákvað ég að prófa skella mér í það í von um að það yrði þægilegra að fara í gegnum hríðarnar þar og ég sé sko ekki eftir því.
Um hálf 11 þá voru hríðarnar farnar að vera sársaukafullari með hverri hríð svo þá ákváðum við að prófa glaðloftið. Fann það virka á mig í byrjun en þegar leið á þá fann ég það ekki alveg virka lengur...Örrugglega búin að klára úr brúsanum :) En þetta glaðloft er snilldartæki því það var ákveðið verkefni í gegnum hríðarnar að anda í það og hjálpaði það mér mikið, Daði stóð eins og klettur við hlið mér og gaf mér að drekka inná milli og reyna gefa mér að borða þar sem ég var orðin svo orkulaus. Ég var bæði orðin dauðuppgefin og búin að æla öllum mat úr mér útaf verkjum. Klukkan 01.15 þá byrjaði ballið, þá færði ég mig úr baðinu og uppí rúm þar sem ég vildi frekar eiga þar heldur en í baðinu.
Eftir að vera búin að rembast í 55 mín þurfti að kalla á læknir því að hjartslátturinn í lillu var farinn að hægjast og hríðarnar voru farnar að styttast og styttast og uppgvötaðist að lilla var að koma í framhöfuðstöðu, ekki bein með kollinn út eins og haldið var (man reyndar ekki mikið eftir þessum hluta en Daði man mest eftir þessu mómenti) sá læknir ákvað svo að kalla til sérfræðing sem kom og skoðaði og var ákveðið að klippa þurfti á spöngina. Komið var með 2 stórar sprautur til að deyfa, svo bara KLIPP og út kom barnið kl 02.18 bólgin og marin á höfðinu litla greyið útaf framhöfuðstöðunni! 50cm og 3245gr
Tilfinningin ólýsanleg, ótrúleg og svo óraunveruleg að fá fallegasta barnið í hendurnar, allt sem á undan hafði gengið gleymdist um leið og litli líkaminn var komin í fangið á mér!!!
Næstu 2 tímar fóru í það að reyna sauma mig saman! Voru þær þrjár þarna í klofinu á mér að reyna átta sig á hvar ætti að byrja og var svo sérfræðingur kallaður til sem kláraði svo saumaskapinn. Á meðan var litla daman bara á brjósti sem hún tók strax og leið ofsalega vel.
Loks fékk ég að standa upp, og var það frekar skrítið þar sem þyngdapunkturinn var aaaaðeins búinn að breytast. Orkan mín var ENGIN og var ég orðin bókstaflega græn í framan af orkuleysi, hungri, ofurþreytu og svima en ég tímdi ekki að setjast niður og missa af fyrstu mómentunum með stelpunni okkar þegar verið var að mæla hana, vigta og fleira sem þurfti að gera.

Um 5 leytið fengum við litla fjölskyldan að staulast saman inná herbergi. Öll saman skriðum við uppí rúm að kúra með litlu snúlluna á milli okkar yyyyyyndislegt. Hringdum í þá nánustu til að færa fréttir og svo var haldið inní draumalandið. Það var samt frekar erfitt að reyna fara sofa þar sem það var mjög erfitt að hætta að horfa á litluna okkar :)
Fallegust!!
Í dag ungfrúin orðin viku gömul. Þessi vika er búin að vera svo notaleg og kósý og ein sú besta! Stelpan okkar er svo ljúf og góð og gætum við ekki verið heppnari!
Fyrstu 2 dagarnir tóku dáldið á svefnlega séð :) Daman var með sogþörf á háu stigi og vildi bara vera á brjósti, svo sofnaði hún þar og leið og við ætluðum að færa hana þá vaknaði hún alltaf og vildi meira. Við vorum aaaalvega að fara prófa setja uppí hana snuð en þorðum ekki þar sem alltaf var talað um við okkur að bíða lágmark 4 - 7 daga með að nota snuð, svo við héldum aftur að okkur. Sogþörfin var svo gífurleg að við vorum öll orðin í sogblettum, hún náði að gefa pabba sínum 2 sogbletti á öxlina á 0.1 sekúndu og voru nokkrir sogblettir á brjóstunum á mér, alveg ótrúlegur þessi litli munnur :)
Sogblettirnir á pabbanum :)
Á öðrum degi fengum við grænt ljós á snuð og þá byrjuðu góðu tímarnir og við fengum að sofa þar sem litla bara sefur og drekkur og bræðir okkur inná milli með magabrosum og stóru augunum sínum. Og getum við eytt heilu stundunum bara að horfa á hana.

Hún bræddi líka alla í 5 daga skoðun, þar gengum við inn í krakkakórinn meðan hún kippti sér ekki upp við læknana þegar þeir voru að skoða hana, heldur horfði bara á þá og velti því fyrir sér hvað væri í gangi. Hún var orðin 3115 gr og bara flottust, og varð einn læknirinn ekkert smá hissa á því hvað hún væri sterk þegar hún tók hana upp og gat bara sagt "VÓ hvað hún er sterk!"
Ljósmóðirin kom heim til okkar á hverjum degi í 6 daga, og fór hún frá okkur á seinasta degi rosalega stolt af litlu stelpunni og allt að ganga svo rosalega vel. Marið á henni er farið og hún er orðin svo slétt og fín og auðvitað fallegust ;)
En við tökum samt sem áður bara einn dag í einu og njótum hverrar mínútu :)
Jæja þá er þessu væmna bloggi loks lokið, nenniggi að lesa yfir það aftur...er alltof langt ;) Er að vinna að Nino síðu svo þá fáiði að sjá fleiri myndir af snuddulínu ;)

Monday, January 7, 2013

40vikur eða 10 mánuðir!!! Meðgangan er sko engir 9 mánuðir það er einn leynimánuður í viðbót sem enginn talar um greinilega...já flókið :)


16v - 20v - 24v - 28v - 32v - 36v - 40v
Þetta er bara seinasta svona myndin sem ég mun púsla saman. Frekar skrítið að hugsa útí það að það sé bara komið að þessu. Þetta tímabil var svo endalaust langt en núna þegar hver dagur fer að verða seinastur þá er eins og óléttutíminn hafi flogið í burtu frá manni. Ég er ekki frá því að ég sé strax komin með smá bumbusakn þó ég geti ekki beðið eftir að hún fari og fæ litla stelpu í heiminn í staðinn. 
40v/2d í dag og allt er voða rólegt, fórum í tíma til ljósunnar í morgun og hún hreyfði aðeins við belgnum til að reyna koma einhverju af stað, veit ekki hvort það hafi eitthvað virkað. Ekki var það þægileg reynsla en ég voooona að eitthvað fari að gerast bráðlega....getiggi beðið lengur!!

Saturday, January 5, 2013

5.Janúar


5.Janúar er runninn upp og ekkkkkkert er að gerast! Vonuðumst nú til að hún léti sjá sig í dag miðað við lætin í henni í gær. Náðum ogguponsu videoi af látunum þegar maginn gekk um í sveiflum, en auðvitað hættir hún alltaf leið og myndavélin kemur á staðinn.

HÉRNA er smá video af iðandi bumbunni.

Svo héldum við líka að hún myndi alveg pottþétt koma í gærkvöldi eða nótt, því við ákváðum að fara í bumbumyndatöku hjá Helenu í dag og það hefði verið svo týpist að ná því ekki. En það var gaman að geta farið í myndatöku á settum degi og hlakka ég til að sjá myndirnar á morgun :)
Við vorum svo á fullu að stússast í dag með það líka í huga að reyna koma einhverju af stað. Þurftum að fara í Ikea og löbbuðum í gegnum allt og húff hvað það var erfitt. Samdrættir og stingir voru alveg á fullu og þrýstingur niður eins og ég veit ekki hvað, eeeeen það hætti um leið og við fórum útúr Ikea. Ég fann líka hvað maður er í eeengu formi lengur eftir 2 mánaða legu þar sem ég fékk hlaupasting að labba í Ikea á skjaldbökuhraða. Og núna sit ég uppgefin uppí sófa eftir erfiði dagsins haha :)

En ef ekkert er búið að gerast fyrir mánudag, þá förum við í belglosun á mánudagsmorgun hjá ljósunni til að reyna ýta okkur af stað. En við höfum einn dag í viðbót áður en það þarf að gerast.
Nenniggi meir Bless...
löppin að troða sér þarna í gærkvöldi...

Verð líka að setja inn alltof krúttlegar myndir af henni Lárey litlu, efri myndin er þegar hún er spurð "hvað ertu sterk??"
Verðandi foreldrar á áramótunum :)


Friday, January 4, 2013

!!

1 dagur í baby!!! svona tæknilega séð þar sem það er komið fram yfir miðnætti. Og hún er ekkert að gera sig líklega til að koma! Enda kannski ekki skrítið, við alltaf búin að banna henni að koma þar til 2013 væri komið að núna þorir hún ekki lengur að reyna að troða sér út eins og hún var byrjuð á:) Ætlum út á morgun í fyrsta göngutúrinn eftir rúmlega tvo mánuði í legu!! Hoppa smá kannski líka:)

Monday, December 31, 2012

24 Tímar!

jæja það eru 24 tímar í 2013!! Ætli við náum:) Það er farið að braka og bresta í mjaðmagrindinni og er orðin svo aum grindinni að það tekur á að ganga, komst varla í skónna mína áðan það var svo óþægilegt að lyfta upp löppinni..daddadammm! nú hlýtur þetta að fara bresta á hvað á hverju!! Finn bara hvað líkaminn er að undirbúa sig! Hef samt ekki fengið neina verki nema óþæginlega túrverki, en finn hinsvegar vel til þegar lilla er að troða sér neðar og spyrna sér í..sjáum hvað setur:) Komin 39 vikur og 1dag:)

Monday, December 24, 2012

GLEÐILEG JÓL

20 vikur - 38 vikur
Sitjum hér í kósýheitum að horfa á the Grinch, og skoða í gegnum bumbumyndir. Það er svo gaman að skoða yfir allar myndirnar og sjá muninn á hverri viku sem leið. Og hugsa að á 20 viku fannst mér bara skrítið að fólk sá ekkert á mér þegar ég fann alveg mun á mér. Og þegar ég horfi sjálf á myndina núna þá skil ég alveg að ENGINN hafi séð neitt á manni hehe. Fyndið líka að sjá mann þrútna út svona á seinustu vikunum og maður verður þreytulegri og þreytulegri í hverri myndatökunni. 
Nú eru aðeins 12 dagar í settann dag og 8 Dagar í áramót. Nú fer þetta bara að gerast hvað á hverju og finnst mér það svo ótrúlegt. Hvert flaug tíminn??
Ég á ekkert til að vera í á jólunum :( búin að fara í gegnum allan fataskápinn og ekkert passar æjæj lúxusvandamál það. Verð líka að vera í einhverju teygjanlegu þar sem maður verður víst fjórfaldur af bjúg við það að borða hamborgarhrygg en ég ætla samt ekki að láta það stoppa mig. Verð bara bangsaleg og fín :)
En GLEÐILEG JÓL frá okkur jólakúlu ;)

Saturday, December 22, 2012

kvart.is

Klukkan er 6, ég get ekki sofið, sofnaði um hálf 2 og vaknaði um 3. Tveggja tíma svefn jey, jinxaði heldur betur í gær þegar ég bar út boðskapinn og fagnaði því að geta sofið loksins. Þessa vikuna hef ég náð að sofa allar næturnar og fyrir vikið verið hressari og fundið minna fyrir bjúg í útlimunum! En núna finn ég bjúginn blómstra í puttunum, er farin að ýta á tvo stafi í einu á símanum í stað eins, nei djók!! en samt eiginlega ekki. Erum að fara í útskriftarveislu í hádeginu, ég verð sko ferska gellan á svæðinu sem rúllar inn.

Það er líka orðið svo erfitt að sofa því ég vakna við andarteppu ef ég leggst óvart á bakið, ó hve ég sakna þess að geta legið á bakinu og maganum!! Það er erfitt að snúa sér frá annarri hlið yfir á hina! Sérstaklega líka þegar lilla er að troða löppinni á sér út á milli rifbeinanna og vill ekki færa sig:) Hvar væri ég án snúningslaksins!! Það er líka alltof heitt, er búin að opna allt til að fá gegnum trekk og kulda, greyið Daði honum líður eins og hann sé að sofa uppá Vatnajökli, meðan ég er í hitabylgju í Afríku! Jæja ætla spila einn jewels leik og svo reyna í 100 skipti að sofna! Góðan dag/nótt kveðja kvartarinn:)