Friday, October 26, 2012

29 vikur og 6 dagar

Jæja hér eru 2 bumbumyndir, 30 vikur á morgun! Dömunni leist ekkert á þessa myndatöku og sparkaði og sparkaði allan tímann...                                                  



Daði að spjalla við Lilluna sína í morgun
Halloween er á næsta horni, og það fer sko ekki framhjá neinum hér í USA


Glataður dýragarður

Seinasti dagurinn okkar hér í Orlando í dag, fengum rigningardag í gær og vindkviður, ussum svei...samt var um 30 stiga hiti, það verður eitthvað að koma heim í "snjóinn"
Vaknaði í morgun við það að litla var að sparka í rifbeinin á mér, svo sparkaði hún aftur svo rosalega að við fundum fyrir hælnum/löppinni á henni bara á leiðinni útúr síðunni á mér :) Annars er hún búin að vera mjög þæg og góð allan tímann í fríinu okkar, fyrsta sinn í gær fékk ég þvílíkt í grindina og labbaði um eins og mörgæs, en bara í eftir miðdeginum og allt farið í dag. Kannski er ameríkufitan farin að síga í :) Það verður sko bara Gúrka á boðstólnum í öll mál þegar við komum heim. Jæks og vigtin á örugglega eftir að hlægja í andlitið á mér!
Svo er ég reyndar búin að vera með rosalegt bakflæði á kvöldin og vakna við það á nóttunni, alveg með sviðann inní eyru....Ætla svo að skella inn einni bumbumynd á eftir!

Annars ætla ég að enda þetta með nokkrum myndum úr dýragarðinum sem við fórum í um daginn, alveg einn sá leiðinlegasti sem ég hef farið í, stundum labbaði maður heillangar vegalengdir og enginn dýr til sýnis. Og nokkur voru skiltin sem sögðu að einhver dýr væru "coming soon" og voru þau skilti nú eitthvað orðin gömul. Og loksins þegar það voru einhver dýr þá voru þau sofandi í búrunum sínum eða uppstoppuð! En þrátt fyrir það skemmtum við okkur konunglega, hér er skemmtilegasta dýrið...Besti vinur hans Daða hann Old Felix, góðar stundir sem þeir áttu saman :)

Tuesday, October 23, 2012

FLÓRÍDA

Ahh lífið er ljúft þessa dagana, sitjum hér á sundlaugarbakkanum í 35 stiga hita og lovinit, erum umkringd íkornum, eðlum, fiðrildum og SNÁK!! Allt í einu kom bara hoppandi snákur útúr runnanum og át eina eðlu sem sat í sínum rólegheitum við hliðina á okkur. Það var frekar krípí atriði, sólstólarnir voru dregnir dáldið langt í burtu frá runnunum eftir þetta :) Þrátt fyrir hitann er byrjað að vera dáldið "kalt" eða svo segja ameríkanarnir! silly people! það er sko ekki kalt!!  Ætla að skella inn nokkrum myndum, vonandi kemur eitthvað inn þar sem netið hér er á sniglahraða!


                                     
Hvalurinn í sólbaði!

Kíktum á djammlífið í Universal City Walk, okkur langaði þvílíkt að fara á Halloween Horror Night í Universal, en ákváðum að við viljum hafa bumbubúann inní mér þangað til í Janúar. Var dáldið smeik við allt bregðudótið :)
29 vikna bumba :)


Daði glaði í HJÚMONGUS veiðibúðinni!

Daði gekk um og rústaði búðinni :) Stóð þarna heillengi að reyna láta stólinn hætta að detta niður, hillan var hallandi niður og rann alltaf aftur niður á gólf þegar hann var að reyna laga, æjæj had to be there moment :) 

Outletið!! 
Heitur dagur á sundlaugarbakkanum
Tanmonster þarna bakvið Daða
Þessi barnabúð var HUGE!! Tekur örugglega viku að ná að skoða allt :)

Monday, October 15, 2012

28 vikur CHECK


Hér á myndunum fyrir er ég 14 vikur vs 28 vikur!! Og á fyrri myndinni var ég bara VÓ það sést geggjað vel að ég sé preggó OMG....En nei aldeilis ekki, í dag er ég PLEHH, þreytt, sjúskuð og svo var unga daman að reyna komast inní brjóstin á mér held ég hún var komin svo ofarlega!!

Hér eru 4 - 5 - 6 - 7 mánuðir...oh boy!

Fórum til í 28 vikna skoðun í morgun til ljósmóður, allt var eins og best á kosið. Daman var svo klesst saman einhvernveginn alveg upp við brjóstin á mér sem gerði það að verkum að að hún var ekki lengi að finna þennan flotta hjartslátt. En auðvitað sparkaði hún nú samt á móti. Smá action í þessu!...
Svo nú er bara komið grænt ljós á að fara til the U S A!! Er komin í flugvélasokkana og erum á leiðinni uppá völl eftir 22 mín!...Við verðum samt með net á hótelinu svo það koma kannski inn nokkar sólarbumbumyndir :)

Thursday, October 11, 2012

Bumbulínur

Fyrsta mál á dagskrá! Inga Birna, núna er ég búin að reyna allt til að gera þetta kommenta kerfi virkt.
Prófaðu núna að ýta á eins og þú sérst að fara kommenta og þá poppar upp gluggi sem þú kommentar í :)
Svo þar fyrir neðan kemur choose an identity og þar hakaru við NAME/ URL. Skrifar svo bara nafnið þitt þar og ýtir svo á publish your comment. Ef þetta virkar ekki, þá gefst ég upp!!! :)

Annars er allt þrusu gott að frétta, bumban stækkar og minnkar eins og henni hentar dag frá degi. En litla spriklar og spriklar. Rútínan hjá henni þegar mest er að gera hjá henni í spörkum og látum, er um hádegi og fram eftir degi, svo á kvöldin þegar ég ligg í afslöppun og sérstaklega þegar ég fer að sofa líka. En það er mest að gera hjá henni á nóttunni þegar ég er sofandi. Daði segir að það sé tíminn sem þau leika sér saman, hann er farinn að vakna sjálfkrafa held ég til að heilsa uppá hana og strýkur maganum. Ég hef aldrei vaknað við það, en í nótt vaknaði ég allt í einu um 3 leitið og ég ætlaði ekki að geta sofnað aftur fyrir látum í henni, það var bara sparkað þvers og kruss. Reyndar er hún á fullu líka núna og klukkan er 9 um morgun. Svo ég veit ekki hvernig þessi rútína virkar hjá henni :) hún er ALLTAF að!

Annars er bara allt annað ósköp eðlilegt og þægilegt, hef allavega engu að kvarta yfir :)
Fer að hitta ljósuna á mánudaginn og vonandi er ennþá grænt ljós á að við förum til Bandaríkjanna í frí, það verður draumur í dós!

Við stelpurnar hittumst á mánudaginn í dinner á Thorvaldsen, það var nú meira. Okkur var ráðlagt að panta borð, þar sem ALLIR voru að vilja panta borð kl 19.00. Svo mætum við á staðinn og þar er ekki sála! við vorum ekki einu sinni viss hvort það væri opið það var svo tómt. Þarna sátum við svo einar fram eftir öllu, ein og ein hræða týndist inn en fór snögglega aftur meðan við sátum þarna. Svo við ákváðum að nýta tóma staðinn og taka bumbumyndir! Ég á 28 viku og Ósk á 36 viku, 2 mánuðir á milli.
                                                         


Svo prufukeyrði Stefán Óli föðurhlutverkið um helgina, 9junda bekkja forvörn í skólanum hjá honum, sem er rosalega sniðugt. Það þarf að svæfa, gefa pela, skipta bleyju, vakna á nóttunni, passa hausinn á dúkkunni. og allskyns skemmtilegir hlutir að honum fannst :) Dúkkan fékk þó ekki betri aðstöðu en það að þurfa sofa á skrifborðstólnum. Það er víst svoleiðis hjá fátækum námsmönnum.
     
Henni Lárey leist ekkert á blikuna að sjá Stefán í pabbahlutverkinu með lítið barn!

Sunday, October 7, 2012

Sunnudagur

Rólegur sunnudagur í dag, bræla úti svo ekki er farið á sjóinn. 3ji dagur í vinnu í dag og 6 dagar eftir í þessari vinnutörn og strax steinrotaðist ég í gær þegar ég kom heim og lagðist á koddann! Fórum í kjötsúpu til tengdó í gær og fékk eitt stykki klippingu í leiðinni...very nice og Daði reyndar líka. Fínt bara að ljúka þessu af við eldhúsborðið þarna í gær, er búin að vera á leiðinni í 100 ár!
Jebb 90 DAYS TO BABY...rólegur tími að fljúga í burtu! Vigtin náði nýjum hæðum í morgun! búin að þyngjast núna um 6-7 kg og enn eru 3 mánuðir eftir. Mér finnst ég ekki geta stækkað meira, fannst eins og skinnið á mér væri að rifna í gær ef ég var eitthvað að teygja mig of mikið. Sem betur fer samt eru engin slit ennþá búin að líta dagsins ljós 7-9-13.
Matarlystin er líka farin að aukast heldur betur, nokkrum mínútum eftir að ég var búin að borða hádegismatinn í dag var ég strax farin að hugsa um eitthvað annað að borða þó ég væri að springa.
Litla sparkar og sparkar og hreyfir sig og hikstar á fullu, alltaf jafn krúttlegt, nema þegar hún sparkar í pissublöðruna. 
Það á eftir að vera mjög skrítið þegar meðgangan er búin að hafa enga óléttubumbu eða lítið kríli inní sér sparkandi, því þetta er orðið svo eðlilegt. Maður fer að hafa áhyggjur þegar hún er ekki búið að hreyfa sig í smá tíma, það á eftir að taka tíma að venjast þegar þessu er lokið að hafa engar hreyfingar inní sér eða spörk og læti.

Svo er bumbuhópa hittingur í kvöld, alltaf gaman að hitta þær og tala bumbumál, og þar verður sko nóg af kökum og kræsingum þar sem margar svangar óléttur munu hittast. Getið rétt ýmindað ykkur :)

Saturday, October 6, 2012

Vika 27 Check

27 vikur DONE!
Það má sko með sanni segja að bumban hafi tekið kipp núna, er bara hissa að sjá þessa mynd hér fyrir ofan hvað bumban er orðin STÓR! Maggi sagði líka við mig í gær að hann væri í fyrsta skipti í gær að loksins sjá það að ég væri ólétt, og það var aftur sagt við mig í morgun hvað ég væri orðin myndarleg, en svo kom annar og sagði að það sæist nú ekkert á mér!!whuuut er ég venjulega svona feit bara ??? uss

Litla byrjaði að sparka í rifbeinin á mér í vikunni, og hún er sérstaklega dugleg í því ef ég sit ekki nógu bein í baki, þá er bara sparkað og maður beðinn um að sitja bein í baki væntanlega :)
Bakflæðið alveg að gera útaf við mig suma daga!
Bakverkurinn hefur ekki látið sjá sig aftur nema einstaka sinnum á nóttunni en svo hverfur það bara aftur daginn eftir sem mér finnst rosalega skrítið. Svo snúningslakið er besti vinur minn á nóttunni núna, snilldar uppgvötun sem það hefur verið!

Úff best að poppa einni Rennie í þessum skrifuðu orðum, litlar er líka á fullu að sparka, maginn á mér gengur í bylgjum hér. Sit hér í vinnunni í rólegheitunum, ballið fer að byrja eftir 15 mín, komnir nú þegar 142 manns sem ætla í Hvalaskoðun kl 13 :) Er farin að taka eftir því líka að túristarnir líta beint á bumbuna á mér þegar þeir koma inn, thjaa eða sumir einn kom nú bara með bjór í gær og ætlaði að gefa mér en afþakkaði pent :)

Ég fékk smá bakþanka í dag um 3D sónar, vorum búin að ákveða að fara ekki, en núna eru allar í bumbuhópnum að tapa sér úr gleði eftir að þær koma úr 3D sónar og þetta var bara það besta sem þær hafa séð...!! ohh what to dooooo????