Wednesday, October 31, 2012

30v + 4d

Bumban á fullri ferð, náði einni bylgjunni á mynd :) (hægra megin)

Loksins loksins gat ég sofið almennilega síðan við komum heim frá USA, búin að eiga miklar andvökunætur og sú lengsta var í gær þegar ég gat ekki sofnað fyrr en kl 5 um nóttina og mætti svo til vinnu kl 8, var að vinna allan daginn og fann ekkert sérstaklega mikið fyrir þreytu. Kom heim og þá fan ég hvað líkaminn var uppgefinn, lá í sófanum og sofnaði ofan í Daða í svona 10 mín og þá skreið ég uppí rúm til að reyna halda áfram að sofa en nei takk fyrir pent. Gat ekki sofnað fyrr en allavega 2 um nóttina. Og vaknaði svo í dag um 2 leytið(er í vaktarfríi í dag :)!!! dhjíses bobby sko, var ekkert smá hissa hvað kl var orðin mikið. Dagurinn bara búinn! 

Held ég hafi vaknað við lillu sem var á fullu spani, maginn gekk um í bylgjum eins og hann gerir svo oft og gæti ég endalaust horft á bumbuna iða til og frá. Held maður eigi eftir að sakna allra hreyfinganna þegar hún kemur í heiminn, þó svo að það muni örugglega fljótt gleymast þegar hún kemur í faðminn hjá manni.
Bumbumynd 30vikur og 4 dagar
Í gær fann ég fyrst almennilega hvernig hún liggur, hausinn er þarna hægra megin og lappirnar á síðunni vinstra megin, þar sem hún sparkar og sparkar. Hún liggur oftast svona og hef ég fundið fyrir því núna alveg í viku eða 2. Þó svo að yfir daginn fæ ég dáldið mikið að spörkum í rifbeinin.
Annars gengur allt ennþá mjög vel, finn einstaka sinnum fyrir í grindinni þegar ég stend upp og stundum þegar ég labba missi ég svona annann fótinn undan mér útaf verkjum. En sem betur fer hverfur það fljótt aftur, en bakflæðið er að verða meira og meira, og heldur mér oft andvaka. 

Búin að þyngjast núna um ca 8 kg, voru nú 10 kg þegar ég kom frá USA á sunnudaginn en það eru 2 kg farin síðan ég kom heim. Sú stutta var sparkandi ALLANN daginn á mánudeginum eftir að við komum heim, held hún hafi ekki tekið neina pásu...hef aldrei upplifað annað eins! Ætli hún hafi ekki verið sybbin og svöng og verið að heimta ameríkufitupizzu, thja eða cheese cake :)
Hún er orðin þægari núna og er farin að leggja sig yfir daginn og er því ekki sísparkandi. Litla mús:)

Fæðingarundirbúningsnámskeið

Sit hér útí bíl í mjóddinni að bíða eftir að Daði komi með rútunni úr vinnunni. Erum að fara á fyrsta fæðingarnámskeiðið af þremur! Er smá stressuð fyrir þessu námskeiði veit ekki alveg afhverju, finnst eins og ég sé ekki búin að undibúa mig nógu vel og verði spurð kannski hvort ég sé ekki búin að gera þetta og hitt til að undirbúa mig og ég bara uu nei! Og fái skammir tilbaka:( hehe
Ég er samt með 2 bækur heima af bókasafninu um barneignir og fleira, er kannski ekki búin að fletta alveg nóg af blaðsíðum í henni:/ Suma daga einfaldlega er ég ekki alveg að fatta hvað er stutt í þetta!! jæja púst púst inn ég fer!

Friday, October 26, 2012

29 vikur og 6 dagar

Jæja hér eru 2 bumbumyndir, 30 vikur á morgun! Dömunni leist ekkert á þessa myndatöku og sparkaði og sparkaði allan tímann...                                                  



Daði að spjalla við Lilluna sína í morgun
Halloween er á næsta horni, og það fer sko ekki framhjá neinum hér í USA


Glataður dýragarður

Seinasti dagurinn okkar hér í Orlando í dag, fengum rigningardag í gær og vindkviður, ussum svei...samt var um 30 stiga hiti, það verður eitthvað að koma heim í "snjóinn"
Vaknaði í morgun við það að litla var að sparka í rifbeinin á mér, svo sparkaði hún aftur svo rosalega að við fundum fyrir hælnum/löppinni á henni bara á leiðinni útúr síðunni á mér :) Annars er hún búin að vera mjög þæg og góð allan tímann í fríinu okkar, fyrsta sinn í gær fékk ég þvílíkt í grindina og labbaði um eins og mörgæs, en bara í eftir miðdeginum og allt farið í dag. Kannski er ameríkufitan farin að síga í :) Það verður sko bara Gúrka á boðstólnum í öll mál þegar við komum heim. Jæks og vigtin á örugglega eftir að hlægja í andlitið á mér!
Svo er ég reyndar búin að vera með rosalegt bakflæði á kvöldin og vakna við það á nóttunni, alveg með sviðann inní eyru....Ætla svo að skella inn einni bumbumynd á eftir!

Annars ætla ég að enda þetta með nokkrum myndum úr dýragarðinum sem við fórum í um daginn, alveg einn sá leiðinlegasti sem ég hef farið í, stundum labbaði maður heillangar vegalengdir og enginn dýr til sýnis. Og nokkur voru skiltin sem sögðu að einhver dýr væru "coming soon" og voru þau skilti nú eitthvað orðin gömul. Og loksins þegar það voru einhver dýr þá voru þau sofandi í búrunum sínum eða uppstoppuð! En þrátt fyrir það skemmtum við okkur konunglega, hér er skemmtilegasta dýrið...Besti vinur hans Daða hann Old Felix, góðar stundir sem þeir áttu saman :)

Tuesday, October 23, 2012

FLÓRÍDA

Ahh lífið er ljúft þessa dagana, sitjum hér á sundlaugarbakkanum í 35 stiga hita og lovinit, erum umkringd íkornum, eðlum, fiðrildum og SNÁK!! Allt í einu kom bara hoppandi snákur útúr runnanum og át eina eðlu sem sat í sínum rólegheitum við hliðina á okkur. Það var frekar krípí atriði, sólstólarnir voru dregnir dáldið langt í burtu frá runnunum eftir þetta :) Þrátt fyrir hitann er byrjað að vera dáldið "kalt" eða svo segja ameríkanarnir! silly people! það er sko ekki kalt!!  Ætla að skella inn nokkrum myndum, vonandi kemur eitthvað inn þar sem netið hér er á sniglahraða!


                                     
Hvalurinn í sólbaði!

Kíktum á djammlífið í Universal City Walk, okkur langaði þvílíkt að fara á Halloween Horror Night í Universal, en ákváðum að við viljum hafa bumbubúann inní mér þangað til í Janúar. Var dáldið smeik við allt bregðudótið :)
29 vikna bumba :)


Daði glaði í HJÚMONGUS veiðibúðinni!

Daði gekk um og rústaði búðinni :) Stóð þarna heillengi að reyna láta stólinn hætta að detta niður, hillan var hallandi niður og rann alltaf aftur niður á gólf þegar hann var að reyna laga, æjæj had to be there moment :) 

Outletið!! 
Heitur dagur á sundlaugarbakkanum
Tanmonster þarna bakvið Daða
Þessi barnabúð var HUGE!! Tekur örugglega viku að ná að skoða allt :)

Monday, October 15, 2012

28 vikur CHECK


Hér á myndunum fyrir er ég 14 vikur vs 28 vikur!! Og á fyrri myndinni var ég bara VÓ það sést geggjað vel að ég sé preggó OMG....En nei aldeilis ekki, í dag er ég PLEHH, þreytt, sjúskuð og svo var unga daman að reyna komast inní brjóstin á mér held ég hún var komin svo ofarlega!!

Hér eru 4 - 5 - 6 - 7 mánuðir...oh boy!

Fórum til í 28 vikna skoðun í morgun til ljósmóður, allt var eins og best á kosið. Daman var svo klesst saman einhvernveginn alveg upp við brjóstin á mér sem gerði það að verkum að að hún var ekki lengi að finna þennan flotta hjartslátt. En auðvitað sparkaði hún nú samt á móti. Smá action í þessu!...
Svo nú er bara komið grænt ljós á að fara til the U S A!! Er komin í flugvélasokkana og erum á leiðinni uppá völl eftir 22 mín!...Við verðum samt með net á hótelinu svo það koma kannski inn nokkar sólarbumbumyndir :)

Thursday, October 11, 2012

Bumbulínur

Fyrsta mál á dagskrá! Inga Birna, núna er ég búin að reyna allt til að gera þetta kommenta kerfi virkt.
Prófaðu núna að ýta á eins og þú sérst að fara kommenta og þá poppar upp gluggi sem þú kommentar í :)
Svo þar fyrir neðan kemur choose an identity og þar hakaru við NAME/ URL. Skrifar svo bara nafnið þitt þar og ýtir svo á publish your comment. Ef þetta virkar ekki, þá gefst ég upp!!! :)

Annars er allt þrusu gott að frétta, bumban stækkar og minnkar eins og henni hentar dag frá degi. En litla spriklar og spriklar. Rútínan hjá henni þegar mest er að gera hjá henni í spörkum og látum, er um hádegi og fram eftir degi, svo á kvöldin þegar ég ligg í afslöppun og sérstaklega þegar ég fer að sofa líka. En það er mest að gera hjá henni á nóttunni þegar ég er sofandi. Daði segir að það sé tíminn sem þau leika sér saman, hann er farinn að vakna sjálfkrafa held ég til að heilsa uppá hana og strýkur maganum. Ég hef aldrei vaknað við það, en í nótt vaknaði ég allt í einu um 3 leitið og ég ætlaði ekki að geta sofnað aftur fyrir látum í henni, það var bara sparkað þvers og kruss. Reyndar er hún á fullu líka núna og klukkan er 9 um morgun. Svo ég veit ekki hvernig þessi rútína virkar hjá henni :) hún er ALLTAF að!

Annars er bara allt annað ósköp eðlilegt og þægilegt, hef allavega engu að kvarta yfir :)
Fer að hitta ljósuna á mánudaginn og vonandi er ennþá grænt ljós á að við förum til Bandaríkjanna í frí, það verður draumur í dós!

Við stelpurnar hittumst á mánudaginn í dinner á Thorvaldsen, það var nú meira. Okkur var ráðlagt að panta borð, þar sem ALLIR voru að vilja panta borð kl 19.00. Svo mætum við á staðinn og þar er ekki sála! við vorum ekki einu sinni viss hvort það væri opið það var svo tómt. Þarna sátum við svo einar fram eftir öllu, ein og ein hræða týndist inn en fór snögglega aftur meðan við sátum þarna. Svo við ákváðum að nýta tóma staðinn og taka bumbumyndir! Ég á 28 viku og Ósk á 36 viku, 2 mánuðir á milli.
                                                         


Svo prufukeyrði Stefán Óli föðurhlutverkið um helgina, 9junda bekkja forvörn í skólanum hjá honum, sem er rosalega sniðugt. Það þarf að svæfa, gefa pela, skipta bleyju, vakna á nóttunni, passa hausinn á dúkkunni. og allskyns skemmtilegir hlutir að honum fannst :) Dúkkan fékk þó ekki betri aðstöðu en það að þurfa sofa á skrifborðstólnum. Það er víst svoleiðis hjá fátækum námsmönnum.
     
Henni Lárey leist ekkert á blikuna að sjá Stefán í pabbahlutverkinu með lítið barn!